156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[16:01]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu hérna í dag um mikilvægt mál. Við lifum í síbreytilegu samfélagi. Við breytumst, skoðanir okkar þroskast og lífið kennir okkur nýja hluti, alla vega mér. Ég skráði mig úr þjóðkirkjunni fyrir mörgum árum vegna þess að á þeim tíma fannst mér kirkjan ekki bjóða velkomna þá fjölbreytni sem samfélagið okkar samanstendur af. Ég upplifði að hún væri ekki fyrir alla. En tíminn leið. Kirkjan hefur breyst, hún hefur þroskast, samfélagið hefur breyst og ég hef sennilega líka eitthvað breyst. Lífið er þroskaferli og í þeirri vegferð hef ég t.d. endurmetið ýmislegt, þar á meðal gildi þjóðkirkjunnar í samfélaginu okkar. Þjóðkirkjan er nefnilega svo miklu meira en bara trúarstofnun. Hún er hluti af menningu okkar. Hún er hluti af sögu okkar og hluti af þeirri siðferðilegu umgjörð sem við lifum í. Hún veitir stuðning á gleðistundum og á sorgarstundum, hún veitir von og hún veitir samveru. En mikilvægast af öllu: Mér finnst kirkjan hafa lært að vera opin, hlusta og taka utan um samfélagið okkar. Þess vegna skráði ég mig í þjóðkirkjuna aftur. Mín ákvörðun.

Virðulegur forseti. Við erum heppin að búa við trúfrelsi á Íslandi. Það er nefnilega ekki sjálfgefið. Trúfrelsi er dýrmætt. Það gefur okkur tækifæri til að velja, til að efast og til að finna okkar leið, að velja að tilheyra trúfélagi eða ekki. Okkar er valið. Við þurfum ekki að vera öll á sömu skoðun og við erum sannarlega ekki öll á sömu skoðun og alls ekki hér á Alþingi, reyndar stundum sammála. Það er bara lífsins gangur og fullkomlega eðlilegt. En við þurfum að hlusta, vera sanngjörn og vanda okkur og kannski tileinka okkur örlítið betur orðatiltækið: Aðgát skal höfð í nærveru sálar.