156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[16:06]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa mjög svo innihaldsríku umræðu og hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir að setja hana hér á dagskrá og ekki síður hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í henni.

Í mínum huga skiptir mjög miklu máli að stjórnvöld styðji við íslenska kirkju. Við sjáum alls kyns blikur á lofti í alþjóðamálum. Við sjáum skautun í umræðunni. Við sjáum á samfélagsmiðlum fólk egna hvert öðru saman. Við sjáum í stjórnmálalegu tilliti verða til upphlaup og alls kyns tilraunir til þess að setja okkur í kassa eða egna saman hópum í samfélaginu. Þá er kirkjan sameiningartákn. Þess vegna vil ég minna á mikilvægi náungakærleikans sem felst í starfi kirkjunnar. Ég er gríðarlega stoltur af minni kirkju og reyni að sækja hana reglulega. Hún er menningarstofnun, hún heldur utan um tónlist, barnastarf, eldriborgarastarf, er sáluhjálp í samfélaginu en hefur líka aðlagast ótrúlega vel. Kirkjan er með opinn faðm. Eins og hér hefur verið nefnt í umræðunni þá var það kannski ekki alltaf þannig en hún hefur aðlagast. Þess vegna tel ég það fagnaðarefni að það er frekar að fjölga í hinni íslensku kirkju frekar en hitt, en um langt árabil fækkaði töluvert. Það skiptir máli að við ræðum kirkjunnar starf hér á Alþingi. Þess vegna fagna ég þessari umræðu og vil minna á það að þegar kemur að sóknargjöldum þá mun ég, hafi ég tækifæri til, áfram styðja við kirkjuna okkar og vona að þingheimur geri það einnig.