156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[16:08]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni, fyrir frumkvæðið að þessarar umræðu og þá þakka ég einnig hæstv. dómsmálaráðherra Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir hennar ræðu. Það er alveg rétt sem hæstv. ráðherra segir, að allt frá kristnitökunni árið 1000 hefur menning íslensku þjóðarinnar verið samofin kristinni arfleifð og gildum. Hvað sem stöðu kirkjunnar í síbreytilegu samfélagi nútímans líður þá hefur hún tekið jákvæðum breytingum síðustu ár. Það verður þá ekki litið hjá því að um 55% landsmanna eru skráð í þjóðkirkjuna. Kirkjur landsins standa öllum opnar, óháð lífsskoðunum eða trú, og prestar þjóðkirkjunnar sinna mikilvægum störfum um allt land. Því vil ég taka undir orð hæstv. ráðherra að prestar gegna mikilvægu hlutverki á erfiðum stundum. Það þekki ég sjálf á eigin skinni. Ég hef þurft á þjónustu þjóðkirkjunnar að halda við hin ýmsu tilefni, bæði góð og slæm, og hef fundið þar huggun, gleði, von og kærleik.

En talandi um kærleik, virðulegi forseti, þá er mikilvægt að rækta hann í samfélaginu öllu. Þá umræðu þekkjum við vel síðustu misserin. Það er nefnilega svo að við fæðumst með samkennd. Við sjáum að þegar eitt barn grætur þá gráta öll börnin. Þessa samkennd verðum við að varðveita og ég trúi því að með því að skilja hvert annað betur sýnum við meiri kærleika og samkennd í garð hvers annars. Ein leið til að auka skilning í garð hvers annars er að þekkja betur sögu og menningu annarra. Það er svo að samfélagið okkar er fjölmenningarsamfélag og samsetning þjóðar er fjölbreyttari en áður. Það er mikilvægt í mínum huga að í skólum sé til staðar öflug trúarbragðafræðsla. Þannig aukum við virðingu sem við höfum í garð hvers annars, kærleikann og samkenndina og getum sett lífsviðhorf hvert annars í samhengi, því að samkenndin og kærleikur eiga að skipta okkur máli.

Forseti. Á Íslandi er trúfrelsi. Allir eiga rétt á að iðka sína trú í samræmi við sannfæringu sína og það er mikilvægt að við virðum það í þessari umræðu. Þjóðkirkjan hefur verið órjúfandi þáttur í menningu okkar og sögu í aldaraðir en staða hennar hefur óneitanlega tekið breytingum. (Forseti hringir.) Kirkjur landsins standa öllum opnar, óháð trú og lífsskoðun, og það er mikilvægt að tryggja að svo verði áfram.