Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.
Virðulegur forseti. Ég tek undir þakkir fyrir þessa umræðu hérna í dag. Það er mjög gott og gagnlegt og bara þægilegt að vera að ræða þessi mál í þingsal. Mig langar að taka undir með þeim sem hafa hér fjallað um mikilvægi kristinfræðikennslu og fræðslu innan skólanna en ég tel mjög mikilvægt að halda kristnum gildum meira að unga fólkinu okkar. Við horfumst í augu við meiri vanlíðan og meira ofbeldi meðal barna og unglinga en nokkru sinni áður og það vekur mann til umhugsunar um hvaða leiðir við eigum og getum notað til að kenna börnunum góð gildi, hvað það er að vera góður og hvað það þýðir að bera raunverulega umhyggju fyrir öðrum. Við þurfum meiri samkennd og kærleika í samfélagið og þá kemur kirkjan upp í hugann og hvort mannauðurinn sem til er innan hennar geti mögulega stigið með einhverju móti inn í skólana í þessu skyni, prestar eða djáknar, og er þá hvorki verið að tala um eitthvert trúboð innan skólanna né að hætta fræðslu um önnur trúarbrögð.
Við þekkjum sálgæsluhlutverk presta sem þegar þungbærir atburðir koma upp fara hvert á land sem er til fólks sem tilheyrir ólíkri trú og hafa verið sameinandi afl í sögu þjóðarinnar. Fyrir rúmum aldarfjórðungi setti þjóðkirkjan á laggirnar í samstarfi við skóla á höfuðborgarsvæðinu sálgæsluverkefni sem kallað var vinaleið. Það var upphaflega skólastjóri sem fékk djákna til að koma inn í skólann og ræða við nemenda sem átti mjög erfitt og bar það slíkan árangur að úr varð umrætt tilraunaverkefni sem náði svo inn í fleiri skóla. Verkefninu var svo skyndilega hætt eftir hörð viðbrögð einstakra foreldra. Að mínu mati væri vert að skoða slíka vinaleið aftur, vinaleið sem ætlað er að styrkja, leiðbeina og sætta börn og aðra innan skólanna. Ég veit að margir kennarar sakna þessa verkefnis og þetta getur verið góð leið og góð viðleitni inn í skólana okkar því að við höfum svo sannarlega þörf fyrir meiri kærleika þangað inn eins og inn í samfélagið allt.