156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[16:13]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Forseti. Þetta er mikilvæg og þakkarverð umræða. Höfum eitt á hreinu til að byrja með: Trúfrelsi er gríðarlega mikilvægt og sjálfstæði þjóðkirkjunnar er það sömuleiðis. En hafandi sagt það þá er sennilega eitt vanmetnasta en jafnframt mikilvægasta samtal sem við eigum í samfélaginu sálgæslan á vegum þjóðkirkjunnar. Hún er afskaplega mikilvæg og brýn og hefur bjargað mörgu fólki. Þjónusta kirkjunnar er vel að merkja þvert á trúarbrögð og er það vel. Hún hefur sýnt það í starfi sínu fyrr og síðar að hún tekur á móti fólki hvar sem það er statt í lífi sínu og hvernig lífi þess er háttað. Menningararfur kirkjunnar er líka gríðarlega mikilvægur. Ég vil minna á að 52% af sóknargjöldum fara til tónlistarstarfs. Kirkjan er stór þáttur í ríku tónlistarlífi landsins hringinn í kringum landið.

Ég vil líka nefna að aðdráttarafl kirkna á Íslandi í menningarlegu og sögulegu tilliti er gríðarlega mikilvægt. Þúsundir ferðamanna, erlendra og innlendra, fara til kirkna að sumri sem vetri til að upplifa frið og vernd. Tvö þúsund manns koma t.d. í Akureyrarkirkju á hverju ári, aðallega útlendingar, til að skoða hana, njóta hennar. Hallgrímskirkja sker sig auðvitað sérstaklega úr. Á síðustu tveimur árum, 2023 og 2024, hafa 800.000 útlendingar komið í Hallgrímskirkju á hvoru ári. Fólk sækir í kirkju, landsmenn líka, ekki bara erlendir ferðamenn, vegna þess að fólk þarf á kirkjunni að halda jafnt í gleði sem sorg og fólk kýs kirkjuna einfaldlega með fótunum í þeim efnum.