156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[16:15]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Hv. framsögumaður, hæstv. kirkjumálaráðherra. Ég fagna auðvitað þessari umræðu vegna þess að saga þjóðarinnar í 1150 ár er mestan part samofin sögu kirkjunnar. Áhrif kristni er án nokkurs vafa einn helsti grunnlitur í litrófi sögu okkar sem þjóðar. Við erum flest alin upp við hefðbundin kristin gildi, falleg gildi, náungakærleik og fyrirgefninguna. Þegar eitthvað bjátar á leita ólíklegustu menn á náðir trúarinnar, bænarinnar og finna þar hugarró.

Herra forseti. Kirkjan er að mínu mati oft óþarflega þögul þegar sótt er að kristinni trú, kristnum gildum og kristinni menningu í okkar góða landi eða þegar fjallað er um ofsóknir gegn kristnum söfnuðum víða um heim. Þjóðkirkjan og hennar þjónar ættu e.t.v. að líta frekar til þeirra sem er annt um kirkjuna sem stofnun í stað þess að reyna að ganga í augun á þeim sem í raun fyrirlíta kirkjuna og allt sem hún stendur fyrir. Þannig hefur kirkjunni stundum tekist að særa þá sem eru hennar mestu og helstu stuðningsmenn. Kirkjan ætti frekar að tala meira til stórs hluta þjóðarinnar sem vill henni vel.