156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[16:17]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir að vekja athygli á þessum mikilvæga málaflokki. Það ríkir trúfrelsi á Íslandi en kristnir þegnar þess hafa að mínu mati átt undir högg að sækja undanfarin ár, landsbyggðin sérstaklega þar sem sóknarbörn umdæma eru færri. Þjóðkirkjan er mikilvæg þar sem og í borg og þéttbýli. Innan hennar er blómlegt félagslíf, kórastarf og safnaðarvinna. Síðast en ekki síst er afar mikilvægt hjálparstarf unnið og þar eru hagsmunir þeirra sem minna mega sín hafðir að leiðarljósi. Á landsbyggðinni eru starfrækt hollvinasamtök til að viðhalda kirkjubyggingum sökum fjárskorts í kjölfar mikilla skerðinga á sóknargjöldum. Fólk vill almennt hefja kirkjuna sína til vegs og virðingar og það eru teikn á lofti til hins betra þegar kemur að stöðu þjóðar trúarinnar. Unga fólkið okkar er leitandi. Mörgum tekst að finna sig í kristinni trú þegar áföll dynja yfir. Fólk sem hefur ánetjast fíkniefnum lýsir því hvernig kristin trú hjálpar því við að ná bata og verða virkt í samfélaginu á ný. Kristileg gildi eru hvatning þeirra um að lifa heiðarlegu og mannsæmandi lífi.

Kristni öðlast ríkari sess hjá æ fleirum hér á landi með tilkomu presta sem tekist hefur að gera heimildasögu hennar bæði nútímalegri og áhugaverðari, tekist að leiðrétta þá mýtu að hún snúist ekki bara um ævaforn kristin fræði heldur fyrst og fremst um að lifa eftir kristnum gildum. Fermingarbörn lýsa í fjölmiðlum að það sé kúl að vera kristin, þeim líði vel með boðskap trúarinnar og vilji lifa eftir honum. Við sem kristin þjóð þurfum að gera hið sanna gildi trúar okkar mun hærra undir höfði. Þá komum við aftur að mikilvægi góðra og nútímalegra presta í samfélagi okkar. Þau hafa lyft grettistaki að mínu mati. Upplifun fólks af öllum kynjum, hvort sem það mætir til sorgar- eða gleðistundar í kirkju sinni, er jákvæðari.