156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[16:20]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. kirkjumálaráðherra. Ég biðst afsökunar á því, virðulegi forseti, að fara ekki alveg rétt með heitið en í þetta skipti þá verður þetta svona, kirkjumálaráðherra skal það vera.

Ég vil þakka fyrir þessa góðu umræðu sem hefur átt sér stað hérna og óhætt að segja að víða hafi verið komið við. En það sem ég vil koma inn á í minni seinni ræðu er að minna á allt það fjölbreytta starf sem er innan þjóðkirkjunnar víða um landið. Varðandi allar þær kirkjur þá eru 400 kirkjur vítt og breitt um landið sem þarf að halda við. Það eru á annað hundrað kirkjukórar. Það er félagsþjónusta í hverju einasta póstnúmeri. Það er prestur innflytjenda. Það er prestur fatlaðra. Það er prestur fyrir heyrnarlausa. Við erum með fangaprest og við erum með safnaðarstarf erlendis og svo mætti lengi telja. Það er gríðarlegt starf sem kirkjan innir af hendi á hverjum einasta degi. En gleymum því ekki að þetta kostar allt peninga. Það er mikill rekstur sem á sér stað. Við þekkjum það varðandi rekstur á kirkjugörðum sömuleiðis að þetta er að sliga sumar sóknir vítt og breitt um landið, ekki bara úti á landi, það á sama við hér á höfuðborgarsvæðinu. Á þetta þurfum við að horfa. Það er nú einu sinni þannig að kirkjan hefur jú vissulega aðlagast og hún hefur opnað faðminn. En við eigum líka að gefa til baka. Við eigum að gefa til baka fyrir þá þjónustu sem kirkjan er að veita öllum, alveg sama hvaða trúar þeir eru, öllum landsmönnum, öllum sem búa hérna. Það er mikilvægt og á því byggist kærleikurinn og fyrirgefningin.