156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[16:22]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Þetta hefur verið góð umræða. Eins og ég nefndi er ég þeirrar skoðunar að það sé mikilvægt að ríkið styðji við þá góðu starfsemi sem fram fer hjá þjóðkirkjunni, þessum 400 kirkjum sem hv. þingmaður nefndi, á sama tíma og það er mikilvægt að við sem samfélag virðum eftir sem áður mismunandi trú og lífsskoðanir fólks í landinu.

Varðandi fjármögnunina þá er það staðreynd í málinu að þjóðkirkjan fær greiðslur úr ríkissjóði í formi sóknargjalda, eins og ég nefndi hérna áður, eins og önnur trú- og lífsskoðunarfélög. Um innheimtu og skil sóknargjaldanna er mælt fyrir í lögum. Þar er staðan sú að lögin kveða á um hvernig sóknargjöldin skulu vera reiknuð en 16 sinnum hefur komið til þess að það kæmu bráðabirgðaákvæði inn sem kveða á um lægri sóknargjöld en reiknireglan gerir ráð fyrir. Auðvitað hefur þetta áhrif. Síðasta haust var skipaður starfshópur til að endurskoða fyrirkomulag sóknargjalda og ég bíð eftir þeim niðurstöðum því að ég ætla að rýna málið í kjölfarið. Þjóðkirkjan fær jafnframt greiðslur úr ríkissjóði á grundvelli svokallaðs kirkjujarðasamkomulag. Það var undirritað ári 1997 en með því varð íslenska ríkið formlegur eigandi allra kirkjujarða að frátöldum prestssetrum en með gagngreiðslu skuldbatt ríkið sig þá til að standa skil á launum til tiltekins fjölda presta og annarra starfsmanna þjóðkirkjunnar. 2019 var síðan gerður viðbótarsamningur við samkomulagið og þar var sjálfstæði þjóðkirkjunnar aukið enn frekar. Þjóðkirkjan fékk, svo dæmi séu nefnd, 3,2 milljarða á síðasta ári og síðan á grundvelli samkomulagsins auk þess 4,3 milljarða í fyrra. Þetta felur þá í sér að kirkjan rekur sig sjálf fyrir þetta fé og stjórnar því sjálf hvernig fénu er varið. En við þekkjum sögu fjármögnunar hér inni á Alþingi og þetta þarf að taka til skoðunar.

Þetta var góð umræða. Hún var uppbyggileg og falleg, vil ég leyfa mér að segja, og ég er þakklát fyrir það að hún skuli geta hafa farið hér fram í dag.