kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegi forseti. Í lóðbeinu framhaldi af umræðu um þjóðkirkjuna ræðum við nú um kirkjugarða. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu. Tilefni frumvarpsins er alvarleg staða í rekstri líkhúsa hér á landi sem nauðsynlegt er að bregðast við. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur rýmum í líkhúsum landsins fækkað undanfarin ár samhliða fjölgun andláta sem helgast auðvitað af því að hér hefur fólki fjölgað mjög. Breytt aldurssamsetning þjóðarinnar og aukinn mannfjöldi hefur leitt til þessarar stöðu. Þá hefur þróunin hér á landi jafnframt verið sú að jarðarfarir fara seinna fram en áður tíðkaðist, þ.e. í sumum tilvikum líður talsverður tími milli andláts og útfarar, jafnvel um 15–17 dagar.
Samkvæmt lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu er kirkjugörðum heimilt að láta reisa líkhús en á þeim hvílir engin skylda til að gera það. Árið 2005 var gert samkomulag milli ríkisins og kirkjugarðaráðs um framlag úr ríkissjóði til starfsemi kirkjugarða og fyrir liggur að framlög ríkisins til kirkjugarða hafa skerst frá því sem um var samið árið 2005 en í kjölfar efnahagshrunsins var gripið til mikilla niðurskurðaraðgerða í ríkisrekstrinum og dregið úr framlögum til fjölmargra stofnana eins og við þekkjum og fjölmargra verkefna ríkisins, þar með talið kirkjugarðanna. Í samkomulagi ríkisins og kirkjugarðaráðs var gert ráð fyrir að fjárveitingar til kirkjugarða gætu tekið breytingum vegna aðstæðna í ríkisfjármálum á hverjum tíma. Kirkjugarðaráð sér um að úthluta framlagi úr ríkissjóði til einstakra kirkjugarða og tekur reiknilíkan kirkjugarðaráðs ekki mið af rekstri líkhúsa við útdeilingu.
Síðustu áratugi hafa nokkrir kirkjugarðar í fjölmennustu sveitarfélögum landsins komið sér upp líkhúsi. Aftur árétta ég það að til þess hafa þeir heimild en á þeim hvílir engin skylda til að gera það. Haustið 2024 ráku tveir kirkjugarðar á landinu fullbúin líkhús. Það voru kirkjugarðarnir í Reykjavík annars vegar og á Akureyri hins vegar. Vegna erfiðs rekstrarumhverfis er sú staða komin upp að kirkjugarðarnir geta ekki haldið áfram rekstri líkhúsanna án fjármagns til rekstursins. Samfélagslegir hagsmunir af rekstri líkhúsa kirkjugarðanna eru miklir og þeir eru augljósir og ég ætla í sjálfu sér ekki að hafa mörg orð þar um. En verði ekki brugðist við stöðunni er hætt við að stefni í óefni og kirkjugarðarnir einfaldlega hætti þessum rekstri. Það er þess vegna nauðsynlegt að búa svo um í lagaumgjörðinni að nú verði heimild sett í lögin til að innheimta gjald til að standa undir þeim kostnaði sem hlýst af rekstrinum. Það verður ekki séð að það sé önnur leið fær til að leysa með skjótum hætti þann vanda sem upp er kominn varðandi reksturinn. Við endurskoðun laganna og samkomulagsins verður síðan hægt að skoða aðrar leiðir í framhaldinu sem kunna að þykja ákjósanlegri til framtíðar litið.
Virðulegi forseti. Það er önnur breyting á lögunum sem er boðuð í þessu frumvarpi. Það var ákveðið að bæta við ákvæði í frumvarpið með hagsmuni þeirra í huga sem missa unga fjölskyldumeðlimi. Þetta varðar tímalengd frátekinna grafarstæða. Í núgildandi lögum er heimilt að taka frá grafarstæði við hlið fjölskyldumeðlims í 50 ár en það liggur fyrir að sá réttur er ekki nægilega langur í ákveðnum tilvikum og hér er verið að koma til móts við þær aðstæður þegar foreldrar missa barn sitt ungt að aldri. Þannig verður mögulegt að leitast eftir því að taka frá grafarstæði við hlið fjölskyldumeðlims lengur en í 50 ár við þessar sérstöku aðstæður.
Við undirbúning þessa frumvarps var haft samráð við kirkjugarðaráð, Kirkjugarða Reykjavíkur og Kirkjugarða Akureyrar.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, virðulegi forseti. Hér er um að ræða tvær efnisbreytingar, annars vegar þetta gjald og hins vegar þetta ákvæði sem hefur hagsmuni foreldra í huga í kjölfar þess að þau missa barn sitt.
Ég legg til að málinu verði að lokinni umræðunni vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og hlakka til að fylgjast með störfum nefndarinnar.