kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna varðandi þetta mál og fagna því að það sé hér komið fram. Það var í vinnslu á síðasta kjörtímabili og er frumvarp sem leysir hluta vandans sem við stöndum frammi fyrir. Það er afar mikilvægt líka að við tökum heildarsamtalið varðandi það hver á að reka líkhúsin. Á það að vera ríki eða sveitarfélög eða einkaaðilar? Við vitum að staðan er kannski pínu flókin hvað þetta varðar og mikilvægt að það komi heildarstefna og heildarendurskoðun á lögunum hvað varðar kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra hvort við megum búast við því að fá að sjá hér á kjörtímabilinu heildarendurskoðun á þessum lögum þar sem lögð er fram heildarstefna í þessum málum því að umhverfið er að breytast, það eru líka sífellt fleiri sem láta brenna sig og við vitum að land er líka takmörkuð auðlind en ég kem eflaust að því í seinna andsvari mínu.