kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir mjög góða spurningu. Það hefur auðvitað verið í umræðunni mjög lengi, eins og við þekkjum, að það sé þörf á heildarendurskoðun þessara laga og mér skilst að þetta hafi verið til umræðu hér í þessum sal, ekki bara í allnokkur ár heldur í áratugi. Eins og ég gat um er ég í þessu frumvarpi að leitast við að bregðast við þessum vanda sem er aðkallandi. Það þarf að leysa úr þessari stöðu hratt og vel því að annars getur stefnt í óefni. Þetta er vandi sem gæti t.d. færst yfir á heilbrigðisstofnanir okkar og við viljum ekki sjá þennan vanda verða alvarlegri en hann er.
Ég fagna í dag 100 dögum í starfi sem dómsmálaráðherra en er sammála hv. þingmanni um það að heildarendurskoðun er nauðsynleg og þar þarf að vanda til verka því að það eru alls konar sjónarmið sem þar þarf að hafa í huga, til að mynda þau sem mér heyrist að hv. þingmaður ætli að nefna hér í sinni næstu ræðu. En eins og ég segi, markmiðið hér í dag er að bregðast við þessum bráðavanda. Síðan tel ég rétt að næsta skref verði að huga að heildarendurskoðun.