156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

253. mál
[16:32]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og óska henni og hennar félögum til hamingju með 100 dagana. Ég fagna því líka að hún taki jákvætt í það að leggja fram þá hugsanlega frumvarp um heildarendurskoðun á þessum lögum sem er afar brýn, um leið og ég segi að þetta frumvarp er afar mikilvægt og ég vona að það fari hratt og vel í gegnum kerfið hjá okkur. Nú sit ég sjálf í allsherjar- og menntamálanefnd og mun því fá málið inn á mitt borð.

Það er eitt líka sem er mikilvægt að nefna þegar við tölum um framtíð kirkjugarða og greftrun líka. Það er landnýting og breyttir siðir. Við sjáum að andlátum mun fjölga töluvert á næstu 20 árum og landrými er takmarkað. Duftreitur og bálför er þjóðhagslega hagkvæmur kostur fyrir þá sem kjósa það. Ég veit að sífellt fleiri eru farnir að kjósa það fremur en annað og auðvitað snýst þetta líka um virðingu og val fólks en það er ein bálstofa starfandi hér á Íslandi, byggð 1946, og hún er enn á undanþágu. Ég veit ekki hvort þetta muni hjálpa til hvað það varðar en þeir sem búa annars staðar á landinu en í höfuðborginni þurfa að fara í sína hinstu för hingað til höfuðborgarinnar kjósi þeir að láta brenna sig, með tilheyrandi kostnaði. Mig langar að heyra kannski aðeins viðhorf hæstv. ráðherra varðandi þetta. Sér hún fyrir sér að það verði bara ein bálstofa, það sé hagkvæmt? Og ef svo er, sér hún fyrir sér einhvers konar stuðning til aðstandenda þeirra sem vilja láta brenna sig en búa ekki hér á höfuðborgarsvæðinu?