156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

253. mál
[16:34]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér er annað aðkallandi mál sem hv. þingmaður kemur með fram í umræðunni sem er bálstofa og staða hennar. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að í mjög vaxandi mæli velur fólk þá leið og því fylgja frá sjónarhóli ríkisins ýmsir kostir. Við vitum að bálstofan er í dag starfandi á undanþágu. Þar er ljóst að staðan þarf að lagast. Þessi mál eru til skoðunar í ráðuneytinu. Ég hef átt nokkra fundi þar um og er meðvituð um það að staðan þar er jafnframt alvarleg. Ég hef raunar rætt þau mál á ríkisstjórnarfundi. Ég er ekki komin með endanlegt svar um það hvernig úr þessu máli verður leyst en ég get fullvissað hv. þingmann um það að sú vinna stendur yfir og ég er meðvituð um að úr því þarf að leysa fljótt og vel.