kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegi forseti. Máltæki segir að það eina örugga í lífinu sé dauðinn. Það er svo sannarlega rétt en það sem við ræðum sjaldan samt sem áður er ábyrgðin sem samfélagið ber á því hvernig við komumst leiðar okkar til hinstu hvílu með reisn og virðingu. Frumvarpið sem nú liggur fyrir um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu er vissulega svar við raunverulegri og aðkallandi stöðu. Það er viðbragð við þeim rekstrarvanda sem lengi hefur loðað við líkhús landsins, Reykjavík og Akureyri, þar sem eru rekin einu fullbúnu líkhúsin. Þetta er viðkvæmt málefni en jafnframt mikilvægt því að þetta snýst auðvitað líka um grunninnviði samfélagsins sem flestir taka sem sjálfsögðum hlut en standa núna á brauðfótum og hafa gert í einhver ár. Við getum ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að útfarir og geymsla látinna hefur orðið flóknari og tímabil milli andláts og útfara lengist. Fjölgun látinna er staðreynd og rekstrargrunnur líkhúsa hefur brostið. Við megum heldur ekki gleyma því að þetta snýst ekki bara um tölur í fjárlögum heldur líka reisn og virðingu látinna og einnig fyrir aðstandendur þeirra.
Virðulegi forseti. Í grein sem ég skrifaði á síðasta ári lagði ég áherslu á að við þurfum að skýra og skilgreina hver beri ábyrgð á látnum einstaklingi, frá dánarvottorði og allt til grafar. Sú vegferð þarf að vera skýr, hún þarf að vera skilvirk og hún þarf líka að vera manneskjuleg. Það er mikilvægt að við tökum samtalið um það einmitt hver eigi að bera ábyrgð á því að reka líkhúsin. Viljum við að þetta sé á hendi ríkisins, sveitarfélaganna eða einkaaðila? Þetta frumvarp sem hér er til umræðu leysir hluta vandans eins og hefur komið fram með því að veita heimild til gjaldtöku en það verður ekki til langs tíma sjálfbær leið nema samhliða komi einmitt heildarstefna og heildarendurskoðun á þessum lögum.
Þegar við ræðum framtíð kirkjugarða og greftrunar þá þarf líka að huga að landnýtingu og breyttum siðum. Mér skilst að andlátum muni fjölga um 100% á næstu 20 árum og við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að landrými er takmarkað. Oft er þetta dýrmætt land í miðjum sveitarfélögum eða bæjum og duftreitur og bálför er að verða þjóðhagslega hagkvæmari kostur. Þó að við ræðum um hagkvæmni verðum við að muna að þetta snýst auðvitað líka um virðingu fyrir fólki og um val og að skapa aðgengi og jöfnuð. Líkt og hefur komið fram í þessari umræðu er auðvitað óviðunandi að aðeins ein bálstofa sé starfandi á Íslandi, byggð 1946, og sé rekin enn á undanþágu.
Frumvarpið sem nú liggur fyrir er nauðsynlegt skref í að tryggja áframhaldandi starfsemi líkhúsa og fagna ég því en eins og ég hef sagt þá er þetta aðeins fyrsta skrefið í stærra verkefni, að endurskoða lögin í heild og skilgreina ábyrgð og móta framtíðarsýn fyrir þá mikilvægu þjónustu sem umönnun látinna og aðstandenda er. Ég vil hvetja okkur öll til að nálgast þetta mál einmitt af virðingu og ábyrgð með hagsmuni fólks að leiðarljósi, bæði þeirra sem kveðja og þeirra sem eftir standa. Sjálf get ég sagt það hér að ég mun styðja þetta frumvarp nema komi til mikilla breytinga við vinnslu málsins í nefndinni en þetta er mikilvægt og ég mun taka áfram samtalið við hæstv. ráðherra um framhaldið á þessu máli því að það þarf að fara í heildarendurskoðun á þessum lögum og taka utan um þetta heildstætt. Það er alveg vilji fyrir því og líkt og hefur komið fram í umræðunni þá hefur oft verið talað um það hérna en ekki ráðist í verkefnið þannig að ég vona að núverandi ríkisstjórn taki þetta verkefni og fylgi því eftir.