kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegi forseti. Ég sá ástæðu til þess að koma hérna sérstaklega upp til að þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir framlagningu þessa frumvarps sem ég styð heils hugar og ekki síst fyrir viðbótina sem felst í 2. gr. eins og aðrir hv. þingmenn hafa komið hér inn á, sem er þessi heimild til að taka frá grafarstæði til lengri tíma en til 50 ára. Við þekkjum það örugglega flest ef ekki öll hér inni að upp geta komið alveg gríðarlega erfiðar aðstæður sem þetta ákvæði tekur sérstaklega til og ástæða til að þakka hæstv. ráðherra sérstaklega fyrir þetta.