kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Herra forseti. Ég er hingað komin í fjarveru hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur sem var að leggja fram að mínu viti mjög skynsamlega breytingartillögu við þetta mál sem hér er um rætt. Efnisatriði þess máls eru í örstuttu máli að dreifing ösku verði gefin frjáls, eins og ég man að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hefur orðað það svo fallega áður, að hver eigi að ráða sínum næturstað. Þetta tek ég undir því óhætt er að segja, eins og kemur fram í greinargerð með breytingartillögu þessari, að það sé um töluverða opinbera íhlutun að ræða þegar kemur að jarðneskum leifum fólks. Álit hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur og fleiri þegar hún hefur á árum áður lagt þetta fram er að sú opinbera íhlutun sé ónauðsynleg og engin ástæða til annars en að einstaklingar hafi meira frelsi um hvernig og hvort jarðneskar leifar þeirra séu varðveittar, grafnar eða þeim dreift.
Með þessari breytingartillögu, herra forseti, er lagt til að dreifing jarðneskra leifa verði gefin alveg frjáls. Áfram þurfi að búa um öskuna í þartilgerðum duftkerjum eftir líkbrennslu en aftur á móti verði gefið frjálst hvað gert verði við kerin. Með tillögunni er jafnframt lagt til að ekki verði kveðið á um skyldu til að grafa kerin niður á grafarstæði eða leggja þau í leiði vandamanna heldur verði um heimild að ræða. Sé hins vegar ákveðið að grafa ker í kirkjugarði skuli fylgja ákvæði laganna.
Hér, herra forseti, er því um að ræða frelsismál, eins og ég segi, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir orðaði það, að hver eigi að ráða sínum næturstað og þá ekki síst í svefninum langa. Það er að sjálfsögðu hægt að skoða síðan útfærslu ef fólki finnst að einhverjir ákveðnir staðir eða eitthvað slíkt ættu að vera undanskildir og það er að sjálfsögðu hægt að ræða allt slíkt en þetta er grunnhugsunin í þessu frumvarpi, eins og ég segi, sem hefur verið lagt fram núna í nokkur ár en ég tel að fari vel á að sé lagt hér fram sem breytingartillaga við það ágæta mál sem hér er verið að ræða af hálfu hæstv. ráðherra. Ég vona innilega að hv. (dómsmrh: allsherjar-) allsherjar- og menntamálanefnd — takk, hæstv. ráðherra fyrir þessa aðstoð — muni taka vel í að skoða, samhliða sinni vinnu við frumvarp hæstv. ráðherra, þessa breytingartillögu frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur.