kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp í lokin til að þakka þingmönnum fyrir góðar viðtökur á þessu máli. Ég held að við áttum okkur öll á mikilvægi þess að þetta mál vinnist hratt og vel og fái að verða að lögum fyrr en seinna. Þetta er í reynd þessi einfalda breyting til að koma til móts við mjög alvarlega rekstrarstöðu sem hefur áhrif á mjög mikilvæga hagsmuni og svo til viðbótar þessi breyting sem kom inn eftir að málið hafði farið í samráðsgátt stjórnvalda þar sem við viljum með einfaldri lagabreytingu viðurkenna þessar sérstöku aðstæður þeirra foreldra sem missa barn sitt ungt að aldri og að sérstök sjónarmið eigi við í þeim efnum, að það sé heimilt að taka frá grafarstæði við hlið fjölskyldumeðlims lengur en í 50 ár. Ég held að það geti allir skilið þá miklu hagsmuni sem þar eru að baki.
Varðandi þetta atriði sem kom fram hér í lokin þá er ég sammála hv. þingmanni um að hér er um frelsismál að ræða. Hér er um að ræða eitt þeirra frelsismála sem ekki náðu fram að ganga á vakt síðustu ríkisstjórnar. Þetta frumvarp núna fjallar um tvö tiltekin atriði. Allsherjar- og menntamálanefnd fær svo það verkefni að taka tillit til þessarar breytingartillögu en ég hafði séð fyrir mér að núna færi ég fram með þetta frumvarp og svo í kjölfarið tæki við vinna um að rýna allt umhverfið í heild sinni. Ég veit að önnur Norðurlönd hafa gjarnan sett einhver skilyrði fyrir öskudreifingu en þetta er eitthvað sem sannarlega má skoða nánar og ég er mjög jákvæð fyrir því en þarna eru ýmis lagaleg álitaefni: Eiga að vera einhver skilyrði, ef það eru skilyrði, hver eiga þau að vera, hver á að veita leyfi til slíks o.s.frv.? En ég þakka þingmönnum kærlega fyrir góða umræðu og jákvæð viðbrögð við þessu mikilvæga máli.