156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.

227. mál
[16:57]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025–2028. Tillagan er lögð fram af ríkisstjórn Íslands með vísun í 26. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Framlagning þessarar framkvæmdaáætlunar byggist sem sagt á lagaskyldu þar um. Mér finnst rétt að greina frá því að þetta mál á sér nokkurn aðdraganda og hefur verið í vinnslu mun lengur en sá ráðherra sem hér stendur hefur verið að störfum en það hafði dregist nokkuð af hálfu fyrrverandi ríkisstjórnar að leggja fram nýja þingsályktunartillögu hér á Alþingi sem leysir fyrri ályktun af hólmi en hún gilti út árið 2023. Samkvæmt lögunum er verklagið þannig að þessar tillögur koma fram með reglubundnum hætti en hér hefur orðið hökt á því.

Mælt var fyrir þingsályktunartillögu hér á Alþingi um svipað leyti og fyrri ríkisstjórn sleit sínu samstarfi og tillagan hlaut ekki þinglega meðferð síðastliðið haust en hún var sem sagt tilbúin þá. Þegar hafin var vinna við framlagningu tillögunnar í dómsmálaráðuneytinu kom í ljós að nokkrum aðgerðum hafi þá þegar verið hrint í framkvæmd. Aðgerðirnar sem ég kynni í þingsályktunartillögunni núna eru 39 talsins og þeim er öllum ætlað hið sama markmið sem er að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna í íslensku samfélagi. Það ætti að vera markmið sem þingsalurinn allur getur sameinast um. Allar aðgerðirnar eru tengdar við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Forseti. Framkvæmdaáætluninni er ætlað það hlutverk að skilgreina stefnu stjórnvalda á hverjum tíma og lýsa verkefnum sem ýmist er ætlað að varpa ljósi á stöðu kynjanna eða fela í sér beinar aðgerðir í þágu jafnréttismála. Áætlunin er sem sagt lögð fram eftir að öll ráðuneyti hafa lagt tillögur í púkkið, ef það má orða það sem svo, en auk þess var höfð hliðsjón af umræðum á jafnréttisþingi og niðurstöðum umræðu hópa frá fundum samráðsvettvangs um jafnréttismál. Veigamestu atriðin sem komu fram á samráðsvettvangi á jafnréttisþingi voru kynbundið ofbeldi, jafnrétti á vinnumarkaði, mikilvægi menntunar með hliðsjón af jafnrétti, jafnréttisfræðsla, fjölbreytileiki, staða kvenna af erlendum uppruna og mikilvægi þess að byggja ákvarðanir á gögnum. Þingsályktunartillaga þessi um framkvæmdaáætlun var unnin í samráði við Jafnréttisstofu og kynnt í samráðsgátt stjórnvalda.

Virðulegi forseti. Hvert er markmiðið með framkvæmdaáætlun um jafnréttismál? Framkvæmdaáætluninni er ætlað að ná utan um brýnustu verkefni í málaflokknum og eins og ég nefndi eru tilteknar aðgerðir sem eiga að koma til framkvæmda á gildistíma hennar og með því á að vera tryggt að áherslur á sviði jafnréttismála birtist með skýrum hætti. Í áætluninni er fjallað um jafnrétti á vinnumarkaði og kynbundinn launamun. Stýrihópur um virðismat starfa í þágu launajafnréttis mun stýra vinnu um þróun og innleiðingu virðismatskerfis en það byggir á tillögum hóps um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði. Það er gert ráð fyrir því að nýtt kerfi hvað þetta varðar liggi fyrir eigi síðar en í árslok 2026. Áætlunin felur í sér að rannsakaður verði launamunur kynjanna í samstarfi við Hagstofu Íslands. Þarna er að finna í áætluninni aðgerð sem lýtur að auknu jafnrétti erlendra kvenna á vinnumarkaði með því að unnin verður launarannsókn á launum þeirra kvenna.

Forseti. Hvað varðar launajafnrétti þá vil ég nefna hér að það er markmið mitt að leggja fram frumvarp um breytingar á þeim kröfum sem gerðar eru um jafnlaunavottun. Það finnst mér eðlilegt að gera nú þegar nokkur reynsla er komin á framkvæmdina. Við munum öll að þessi lög voru lögfest þegar ríkisstjórn Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar sat. Mér finnst eðlilegt, nú þegar nokkurra ára reynsla er komin á, að við leggjum við hlustir og hlustum á þá réttmætu gagnrýni sem fram er komin á framkvæmdina. Allir sem vilja vita það átta sig á því að góð staða Íslands í jafnréttismálum, m.a. á vinnumarkaði, helgast einmitt af markvissum aðgerðum og skrefum, skrefum sem hafa þokað viðhorfum í rétta átt, skrefum sem hafa leitt til þess að við erum í þeim fínu málum hvað varðar launajafnrétti sem reyndin er á. En á sama tíma heyri ég þau sjónarmið að framkvæmdin sé fyrirtækjum og stofnunum of þung og í mínum huga á að bregðast við slíkri gagnrýni. Það á að hlusta á hana. Ég tilheyri ekki þeim og tek ekki undir sjónarmið þeirra flokka sem eru á „autopilot“-stillingu alltaf á móti öllum aðgerðum í þágu jafnréttis. Ég er ekki þar. En mér finnst að við eigum að taka tillit til svona réttmætra sjónarmiða ef þau koma fram. Ég er með þetta mál til skoðunar og hyggst leggja fram frumvarp þar um.

Forseti. Ég legg þunga áherslu á aðgerðir sem lúta að því að taka með markvissum hætti á kynbundnu ofbeldi. Þar vil ég sérstaklega nefna aðgerðir sem ætlað er að bregðast við tilmælum eftirlitsnefndar um samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Þetta er hinn svokallaði Istanbúl-samningur og um þetta er fjallað í framkvæmdaáætluninni. Við vitum vel hver árangur Íslands í jafnréttismálum er og ég hélt þeim árangri í mjög rækilega til haga þegar ég sótti kvennaþing Sameinuðu þjóðanna nú fyrir skemmstu því ég lít svo á að við sem Íslendingar eigum að vera stolt af þessum góða árangri sem við höfum náð í jafnréttismálum og þegar við erum stolt af árangrinum þá hljótum við að leiða hugann að því sem skilaði þessum árangri og auðvitað voru það aktífar aðgerðir en ekki tíminn einn. En í ljósi þess hve glæsilegur árangur okkar er í jafnréttismálum er staðan hvað varðar ofbeldi gegn konum mikil þversögn, mikil og alvarleg þversögn. Það er ótrúlegt hversu algengt það er í íslensku samfélagi að konur og stúlkur verði fyrir ofbeldi sem þær verða fyrir vegna kynferðis síns. Þessi staða er svartur blettur á okkar samfélagi og hugur minn er því við þau verkefni sem við okkur blasa til að taka á þessu. Í áætluninni er einnig að finna aðgerð um að kynna með markvissum hætti samning Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum.

Ég ætla ekki að standa hér og þylja upp allar þær aðgerðir sem í þessari áætlun er að finna en hér er t.d. áhersla á að styrkja og tryggja jafnrétti og jafnréttisfræðslu í skóla- og íþróttastarfi með auknu aðgengi að kynja- og jafnréttisfræðslu og aðgerðum að stemma stigu við brottfall drengja úr framhaldsskólum því þar er að teiknast upp ákveðin mynd sem við verðum með markvissum hætti að rýna og bregðast við. Þarna eru aðgerðir um jafnrétti í íþróttum og að tekið sé tillit til kynja- og jafnréttissjónarmiða við endurskoðun íþróttalaga. Þarna er fjallað um ástæður til þess að skoða stöðu kvenna hvað varðar íþróttaumfjöllun sem og í fjölmiðlum.

Forseti. Ég vil að lokum nefna alþjóðlegar skyldur íslenskra stjórnvalda á sviði jafnréttismála. Í áætluninni eru aðgerðir um að efla alþjóðlegt málsvarastarf og aðgerðir Íslands, m.a. með því að styðja jafnréttisverkefni í þróunarríkjum. Þar hefur Ísland góða sögu að segja og á að miðla af reynslu sinni og styðja konur og stúlkur í þróunarríkjum. Þá verður lögð áhersla á jafnrétti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna á meðan Ísland á þar sæti núna næstu tvö árin. Rödd Íslands í jafnréttismálum er sterk á alþjóðavettvangi og til okkar er litið. Við eigum að vera stolt af okkar árangri. Við eigum að halda honum á lofti og við eigum að vera meðvituð um það að þessi árangur Íslands er afrakstur stefnu, afrakstur aðgerða, afrakstur vinnu. Árangurinn var það ekki bara til með tímanum einum. Þar hafa pólitískar ákvarðanir haft mikið að segja.

Þá stuttlega um fjármögnun en á gildistíma áætlunarinnar er gert ráð fyrir að verja um 90 millj. kr. til verkefna á vegum ráðuneyta. Þar af koma 48 millj. kr. úr framkvæmdasjóði sem úthlutar til skilgreindra verkefna.

Virðulegi forseti. Í ár eru liðin 50 ár frá kvennafrídeginum þegar 90% kvenna á Íslandi lögðu niður bæði launuð og ólaunuð störf og stormuðu niður á Lækjartorg til að krefjast breytinga og jafnréttis á við karla, sömu launa fyrir sömu vinnu, jafnra tækifæra til menntunar og starfa og umráðaréttar yfir eigin líkama. 50 árum síðar erum við fremst meðal þjóða á sviði jafnréttis. Þetta er góður árangur og fallegur. Ísland trónir í efsta sæti á alþjóðavettvangi þegar kemur að jafnrétti kynjanna og hefur gert um árabil. Sá árangur náðist sannarlega ekki þrautalaust og hann getum við þakkað samstöðu baráttukvenna fyrri áratuga sem lögðu mikið á sig fyrir jafnrétti kynjanna og ég vil leyfa mér að segja að við stöndum í þakkarskuld við þær. Samhliða þessu minnumst við þeirra afreka sem kvennahreyfingin á Íslandi hefur fært okkur með baráttu sinni og þeirra framfara sem hafa áunnist hér á landi í jafnréttismálum. Þá eigum við að gæta þess að þessi árangur gangi ekki til baka. Við vitum það sannarlega með mannréttindi að slíkt getur gerst og þótt gríðarlegum árangri hafi verið náð þá eru áskoranir sem bíða þess að verða leystar. Ég nefndi í því samhengi stöðuna hvað varðar ofbeldi í samfélaginu og þá er umhugsunarvert hver staðan er hvað varðar kynskiptan vinnumarkað og þetta vanmat á hefðbundnum kvennastörfum. Þetta eru stærstu sviðin að mínu mati; vanmat á virði kvennastarfa annars vegar og ofbeldi gegn konum hins vegar. Þó að Íslendingar standi hvað framarlegast allra þjóða á sviði jafnréttis þá eigum við að horfa til þessara stóru mála, vitaskuld, sem út af standa. Það er markmiðið og þangað liggur vegferðin. Ég mun sem dómsmálaráðherra samtvinna áherslur mínar sem ráðherra dómsmála og jafnréttis, enda er skörunin augljóst hvað varðar t.d. aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi og hef nú þegar sett af stað vinnu um að endurskoða löggjöf og framkvæmd nálgunarbanns.

Virðulegi forseti. Ég hef gert grein fyrir verkefnum í framkvæmdaáætlun um kynjajafnréttismálin fyrir árin 2025–2028 og legg til að henni verði að lokinni þessari umræðu vísað til allsherjar- og menntamálanefndar.