framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.
Virðulegur forseti. Það var leiðinlegt að hæstv. dómsmálaráðherra skyldi ekki bara lesa upp þessa tillögu til þingsályktunar vegna þess að það er margt í henni sem gæti lyft brúninni á þingmönnum og þeim sem á hlýða. Í greinargerðinni er gert ráð fyrir 12 millj. kr. kostnaði á ári við að innleiða þessar aðgerðir allar saman og tiltekið er að fjárhæðin hafi verið um 10 millj. kr. árlega hingað til, en nú á að setja 12 milljónir í þetta. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji í jafn viðamiklum aðgerðum, þær eru 39 talsins, að þetta sé raunverulegt kostnaðarmat og hvort hún þekki það hvort fyrri aðgerðir hafi farið fram úr áætlun, vegna þess að margar þessara aðgerða virðast nú kalla á töluverða rannsókn. Ég nefni hér að gamni 4. aðgerðina sem hæstv. dómsmálaráðherra leggur til að verði farið í; hugræn vinna kynjanna þar sem verði unnið að því að fanga kynjamynstur hugrænnar vinnu á Íslandi og um leið verði unnin eigindleg rannsókn á hugrænni vinnu, með viðtalsviðbót við megindlega tímarannsókn sem Hagstofa Íslands gerði fyrir forsætisráðuneytið, og í þessari eigindlegu rannsókn verði rýnt betur í niðurstöður megindlegu rannsóknarinnar sem endurspeglar hugræna vinnu og ósýnilega verðmætasköpun hennar. Þetta er dæmi um aðgerð af þessum 39 sem ég velti fyrir mér hvort væri hægt að ná utan um fyrir 12 millj. kr. á ári.
Svo langar mig líka að spyrja um bakslagið í kvenréttindabaráttunni og jafnrétti kynjanna sem nefnt er í athugasemdum þar sem fram kemur að á undanförnum árum hafi orðið bakslag í réttindum kvenna og hinsegin fólks í heiminum. Mig langar að vita hvort hæstv. dómsmálaráðherra telur að þetta bakslag (Forseti hringir.) nái hingað til Íslands og kalli á það að 39 aðgerðir í jafnréttismálum séu lagðar fyrir Alþingi.