framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.
Virðulegi forseti. Mér fannst svolítið gaman þegar ég stóð hér og flutti ræðu mína að sjá Miðflokksmenn streyma hingað inn í þingsal. Það má alltaf gefa sér það að nánast um leið og við segjum orð sem byrja á J, hvað þá þegar A, F og N koma á eftir, þá bilast þau.
Telur ráðherra að kostnaðarmat standist skoðun? Kostnaðarmatið liggur fyrir í málinu og lítur út með þessum hætti. Ég treysti ráðuneytunum og þeim framkvæmdaraðilum vel til að sinna þessum verkefnum fyrir þennan pening. Ég minni á að þetta eru tillögur sem komu frá ráðuneytunum öllum. Þetta er pakki sem hefur verið unninn um langan tíma.
Hin spurningin var: Telur dómsmálaráðherra að það sé raunverulegt bakslag á ferðinni, t.d. hvað varðar stöðu hinsegin fólks í samfélaginu? Hiklaust já, hiklaust já. Ég hef hlustað á sögur fólks og um það eru gögn í alþjóðlegu samhengi að ungt fólk, hinsegin fólk upplifir breytt viðhorf í samfélaginu, fólk upplifir það að ganga um miðborg Reykjavíkur og þarf að þola gelt, þarf að þola áreiti fyrir það eitt að vera það sem það er. Þetta er sannarlega til marks um bakslag. Því ber að taka alvarlega. Það geri ég og ég ætla mér að vinna gegn því.