156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.

227. mál
[17:14]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, þá er nú miður að þessi jafnréttisáætlun taki ekki til hinsegin fólks. Þetta er framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum og lýtur ekki að mikla bakslaginu sem hæstv. dómsmálaráðherra telur hér vera og er vert að rannsaka af hverju hafi orðið svo mikið bakslag í málefnum hinsegin fólks hér undanfarið, hvað hefur breyst í samfélagsgerð Íslendinga á síðustu árum sem gæti skýrt þetta mikla bakslag sem hæstv. dómsmálaráðherra telur að hinsegin fólk verði fyrir í dag? Hvað ætli það sé? Hins vegar hjó ég eftir því og tek undir með hæstv. dómsmálaráðherra að auðvitað hefur verið vanmat á hefðbundnum kvennastörfum á Íslandi. Ég held að margir geti tekið undir það. Við þekkjum þessi störf. Þetta eru umönnunarstörf og kennslustörf og vissulega er mikið verk fyrir höndum að bæta þar úr. Hægt er að gera það með ýmsum hætti en það er ekkert verið að víkja að því í þessari jafnréttisáætlun, þessari framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum hæstv. dómsmálaráðherra, heldur er þvert á móti enn og aftur verið að líta til háskólasamfélagsins og verið að kalla eftir skýrslum og rannsóknum frá háskólasamfélaginu og lyfta konum í slíkum stöðum. Hér er aðgerð 36 sem kallar eftir því að unnið verði að því að jafna kynjahlutföll nemenda á háskólastigi og að nemendur á háskólastigi endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Er það hlutverk háskólans að endurspegla hlutföll einhverrar samfélagsgerðar? Hlutverk háskólans hefði ég haldið að væri að skila vel menntuðum einstaklingum úr háskólanum en ekki að tryggja það einhvern veginn að nemendur á háskólastigi séu svona eða hinsegin þegar þeir koma þangað inn og að greina einhvern kynjahalla í háskólanum sérstaklega.

Mig langar því að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra að því hvort hún hafi ekki í huga að til séu fljótlegri og skilvirkari leiðir til að mæta einmitt þörfum kvenna í þessum vanmetnu kvennastörfum heldur en þessi framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum (Forseti hringir.) sem telur 39 aðgerðir sem eiginlega allar varða háskólamenntaða einstaklinga.