156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.

227. mál
[17:16]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður kemur upp og spyr: Telur hæstv. ráðherra að það hafi orðið bakslag gagnvart hinsegin fólki? Ráðherra kemur upp og svarar spurningunni. Þingmaðurinn birtist og segir með þjósti: Af hverju talar ráðherra um hinsegin fólk? Hv. þingmaður spurði um hinsegin fólk. Ég svaraði spurningunni. Það var ástæðan. (Gripið fram í.) Ég sé að hv. þingmaður tekur það til sín. Það liðu þrjá mínútur á milli spurningar og svars og hv. þingmaður er búin að gleyma því að það var hún sem spurði um hinsegin fólk. Ég leyfði mér að svara spurningunni. Ég er glöð og ánægð að heyra að hv. þingmaður er sammála mér um að það er mikilvægt jafnréttismál að bæta úr þeirri stöðu hvernig samfélagið verðleggur umönnunarstörf. Það er jafnréttismál og nokkrir kaflar fjalla um jafnrétti á vinnumarkaði og kynbundinn launamun. Við höfum náð frábærum árangri hvað varðar launamun vegna þess að við höfum farið í aktífar aðgerðir. Þá erum við að tala um það að sömu störf skili sömu launum. Næsta skref er að horfa á vinnumarkaðinn í heild sinni. Auðvitað hefur það með að gera t.d. hvað á sér stað í háskólunum og skólunum öllum, og ég leyfi mér að horfa á hv. þm. Jón Pétur Zimsen í því samhengi. Við vitum hver staða drengja er í skólunum. Við vitum að kynin eru ekki að velja sér sömu námsgreinar og við vitum að það er ekki tilviljun ein sem ræður því hvernig þessi störf eru verðlögð. Þetta vitum við allt og við eigum að þora að segja það upphátt og vinna markvisst gegn því. Hér er fram komið eitt skref til þess.