156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.

227. mál
[17:18]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það var sannarlega af nógu að taka þegar maður las í gegnum framkvæmdaáætlun hæstv. ríkisstjórnar í kynjajafnréttismálum en ég skrifaði hjá mér nokkra punkta og langaði til að spyrja hæstv. ráðherra út í þá. Í fyrsta lagi afstöðu hæstv. ráðherra til þess að embættismannabatterí eins og Jafnréttisstofa haldi námskeið um jafnréttissjónarmið fyrir kjörna fulltrúa og pólitíska stjórnendur. Í öðru lagi hvort tillaga um að unnið verði að því að jafna hlut kynja í íþróttaumfjöllun og fjölmiðlaumfjöllun almennt standist jafnréttissjónarmið fjölmiðlalaga. Mig langaði bara að heyra það frá hæstv. ráðherra hvernig þetta yrði útfært. Erum við að tala um afskipti af frjálsum fjölmiðlum eða mun þetta einskorðast við þjóðarútvarpið? Eigum við von á því að sjá frekari umfjöllun um snyrtibuddur karlmanna í fjölmiðlum eða hvernig verður þetta útfært? Þriðji punktur er um tillöguna að greining verði unnin á kaupum fólks á rafbílum út frá kynjasjónarmiðum. Af hverju ætlum við að stoppa þar? Er ekki mikilvægt að kynjagreina hárvörunotkun út frá áhrifum á ósonlagið til að mynda? Að endingu skrifaði ég hjá mér í fyrra andsvari til gamans, og hv. þm. Sigríður Á. Andersen var þegar búin að koma inn á það, að unnið verði að því að fanga kynjamynstur hugrænnar vinnu. Mér þótti bara gaman að segja þetta hér.