156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.

227. mál
[17:20]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því, eins og ég reyndar nefndi í framsöguræðu minni, að þetta er tillaga sem var unnin á vakt síðustu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Breytir ekki því að ég legg hana stolt fram.

Þingmaðurinn spyr: Vil ég senda stjórnmálamenn á námskeið um jafnréttismál, þingmenn Sjálfstæðisflokksins? Absalútt, ekki spurning. [Hlátur í þingsal.] Ég vil ólm senda ykkur á námskeið um jafnréttismál og ég minni þingmanninn á að stór hluti af kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins, sem skilaði verstu niðurstöðu frá stofnun flokksins, var háður um jafnréttismál og skilaði þeirri niðurstöðu sem reyndin varð. Ég segi: Jafnréttisnámskeið á línuna.