156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.

227. mál
[17:21]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er svo freistandi að festast í því en það er svo margt annað sem ég þarf að ræða. Hæstv. ráðherra lýsti því yfir að hún væri stolt af aðgerð 4, það er þó a.m.k. staðfest og skjalfest. Ég er reyndar þrælspennt fyrir því líka að senda hv. þingmenn Viðreisnar á alls konar námskeið og það er kannski bara hugmynd að þingmannamálum.

Að næsta punkti í framkvæmdaáætlun hæstv. ríkisstjórnar í kynjajafnréttismálum; að unnið verði áfram að innleiðingu jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar. Ég ætla ekki að fara að þjófstarta þeirri umræðu því að ég hef þegar lagt inn fyrirspurn til hæstv. ráðherra um nákvæmlega þetta mál og ætla að reyna að sitja á mér, en mér sýnist að þessi tillaga gangi út á það að safna saman og birta upplýsingar um þá sem hafa farið í gegnum þetta bákn, þetta hugarfóstur Viðreisnar. Lögð er mikil áhersla á að lögunum sé framfylgt, það kemur beinlínis fram í tillögunni. Ég sjálf dreg það í efa að Jafnréttisstofa sé þess bær að vinna að því að bæta jafnlaunakerfið eins og stefnt er að. Starfsmenn hennar hafa tekið sig til og varið þetta kerfi opinberlega. Ég hjó eftir því að hæstv. ráðherra segist vilja leggja við hlustir. Hvað þá með þau skref sem hafa verið tekin í þágu jafnréttismála sem hafa ekki skilað neinum marktækum árangri og eru jafnvel skaðvaldur, hvað finnst hæstv. ráðherra um slík skref? Ég er sjálf síður en svo sjálfkrafa á móti jafnréttisaðgerðum, svo að vísað sé í orð hæstv. ráðherra, sem skila árangri. Fæðingarorlof og dagvistun barna kemur fyrst upp í hugann. Ég er nú íbúi í Reykjavík og það eru ýmsir vankantar á þeim málum þar. En mig langaði að heyra örstutt í hæstv. ráðherra um jafnlaunavottunina og þau skref sem hafa verið tekin og skilað engum árangri.