156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.

227. mál
[17:23]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég gat þess sérstaklega í ræðu minni að ég hyggst leggja fram frumvarp til að létta á skilyrðum jafnlaunavottunar af fenginni reynslu. Ég gef mér að hv. þingmaður hafi ekki heyrt af þessu. Hugarfóstur Viðreisnar; já, við vorum í þeirri ríkisstjórn þar sem þetta var lagt fram. Það gerði þáverandi félagsmálaráðherra flokksins. Þetta var í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem baðaði sig í þessu máli á alþjóðavettvangi, mætti á erlenda grundu og talaði á ráðstefnum, HeForShe, formaðurinn. Hann baðaði sig í þessu máli. En þetta er málið sem ég var að vísa til þegar ég sagði að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ákveðið að heyja kosningabaráttu í Reykjavík á þessu máli um jafnlaunavottun. Hlustunin hjá kjósendum var ekki sérstaklega mikil. Ég hyggst leggja fram frumvarp til að endurskoða framkvæmdina á þessu annars góða máli. Mér finnst svo skemmtilegt þetta valkvæða minni Sjálfstæðismanna. Það er það sem situr eftir eftir þessi sjö ár, valkvætt minni, og held ég að örugglega sé einhver fræðingur uppi í háskóla sem getur sagt okkur söguna af því hvað fólk í tráma gerir. Það velur hvað það man. Við munum hvernig síðustu sjö ár voru. Þá birtist ekkert frumvarp um endurskoðun jafnlaunavottunar, var það? (DME: Það kom frá mér.) Já, af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ekkert slíkt. En þetta frumvarp er væntanlegt núna hjá nýrri ríkisstjórn.