framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.
Virðulegur forseti. Á tímum þar sem konur gegna öllum æðstu embættum þjóðarinnar á sama tíma, bókstaflega öllum hugsanlegum æðstu embættum þjóðarinnar, á tímum þar sem staðan er sú og á tímum þar sem leiðréttur launamunur á milli karla og kvenna mælist 3,6%, sem sagt varla marktækur ef þú tekur tillit til, já, bara ólíkra ákvarðana fólks, á tímum þar sem 58% kvenna á Íslandi virðist vera með háskólamenntun samkvæmt þeim gögnum sem ég sé og 31% karla og á tímum þar sem framhaldsskólar eru hreinlega komnir með kynjakvóta til að hleypa vesalings ólæsu piltunum okkar af mildi inn í gegnum inntökuferlið, á þessum tímum þar sem algjört lagalegt jafnrétti ríkir milli karla og kvenna og hefur gert í 20 ár og er stjórnarskrárbundið eftir því sem ég best veit og ekkert bendir til þess að neinn vilji breyta því, á þeim tímum þá felst auðvitað í því ákveðin hugarleikfimi að fjalla hér um bakslag í jafnréttismálum karla og kvenna. Það má þó alltaf teygja sig.
Það vakti athygli mína í þessari umræðu að hæstv. dómsmálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir treystir sér ekki til að taka undir það að hér hafi orðið eitthvert bakslag á Íslandi í réttindum kvenna. Hún víkur að málefnum hinsegin fólks, sem þessi áætlun fjallar ekki um, en hún treystir sér ekki til að fullyrða að þetta bakslag sé orðið. Samt er það efni frumvarpsins. Það er alltaf verið að tala um þetta bakslag. En þegar maður ætlar að finna bakslag þá þarf náttúrlega að teygja sig og það þarf að færa rök fyrir bakslaginu eins og er gert með svo sem fjölbreyttum hætti í þessari jafnréttisáætlun. En þar sem jafnréttisárangurinn hefur verið svona mikill á öllum helstu öðrum sviðum þá þarf að leita á ný mið og þá komum við að þessum kostulegu aðgerðum sumum. Hver er t.d. staðan þegar kemur að rafbílaeign yfirstéttarinnar á Íslandi, sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir spurði út í en við fengum ekki (DME: Ég á engan rafbíl.) svör um. Rafbílaeign yfirstéttarinnar, ríkir jafnrétti þar eða verður ríkisvaldið að grípa inn í? Þá förum við, með leyfi forseta, í aðgerð 15, Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða við úthlutanir úr Loftslags- og orkusjóði: „Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka áhrif [styrkveitinga sjóðsins] til rafbílakaupa á jafnrétti kynjanna.“ Ég velti fyrir mér hvort þessi áætlun hafi bara orðið eftir í jafnréttisráðuneyti Vinstri grænna og hæstv. dómsmálaráðherra hafi lagt hana óbreytta fram. Ég þekki ekki nákvæmlega hvernig það er. (Dómsmrh.: Það er rétt.) Það er rétt. Mér býður í grun að hæstv. ráðherra hafi raunverulega ekki lesið sumt af því sem hér kemur fram en leggur það samt fram, sem eru auðvitað, ef út í það er farið, ekki sérlega góð vinnubrögð. Hér stendur í skýringu við þessa áætlun um að skoða kynja- og jafnréttissjónarmiðin í tengslum við rafbílana:
„Fyrirkomulagi styrkveitinga er ætlað að tryggja aukinn jöfnuð til rafbílakaupa en þar sem styrkirnir fela í sér fasta krónutölu eru þeir hlutfallslega hærri við kaup á ódýrari rafbílum. Þar sem konur eru líklegri til þess að kaupa sér smærri og hagkvæmari bíla en karlar“ — athugið, þetta er staðalmynd — „má ætla að styrkjafyrirkomulagið henti betur með tilliti til kynjajafnréttis.“
Virðulegi forseti. Maður fattar ekki alveg hver punkturinn er. Það virðist vera niðurstaðan í þessu að staðan eins og hún er núna, að fyrirkomulagið eins og það er núna henti betur með tilliti til kynjajafnréttis. En samt ætla yfirvöld að ráðast í sérstaka aðgerð til þess að gera hvað? Rannsaka áhrif styrkjanna. Svona skil ég þennan texta en maður er auðvitað bara einn af þessum drengjum úr skólakerfinu sem eru kannski ekki með fullnægjandi læsi til þess að átta sig á því sem þarna stendur. En þetta er engu að síður kyndugur texti. Þetta er gjörsamlega raunverulega tilgangslaust og það kemur fram í efni þingsályktunartillögunnar.
Fleira mætti lesa upp hér. Menn hafa nefnt hér eigindlegu rannsóknina sem fyrirhuguð er og já, hvað var það annað? Fjölmiðlaumfjöllunin. Maður veltir fyrir sér hvernig á að framfylgja því, kannski í gegnum styrkina. En ég tek fram, og ég segi auðvitað: Það er vert að taka fram í þessu samhengi að í þessari áætlun eru tíunduð góð og verðug áform sem varða heimilisofbeldi, ofbeldi gegn konum, sem eru sannarlega andstyggilegt samfélagsmein og þar ber ríkisvaldið sannarlega ábyrgð, að tryggja öryggi kvenna á Íslandi. Það er sannarlega þannig. Við eigum að gera sífellt betur með hverju ári á þessu sviði. En ég tel það hins vegar ekki þeim málstað, mikilvæga málstað, til framdráttar að honum sé blandað saman við áráttu örlítils hóps að tryggja, ekki jafnan rétt og ekki jöfn tækifæri kvenna, heldur að því er virðist að tryggja jafnt hlutfall kynjanna á öllum mögulegum sviðum samfélagsins einfaldlega kynjahlutfallsins vegna. Ríkisvaldið þarf ekki að taka þátt í því áhugamáli hins fámenna hóps og mörg óskiljanleg gæluverkefni í þessari þingsályktunartillögu, þessari jafnréttisáætlun, t.d. í þessu kynja-, loftslags-, rafbílajafnréttismáli, bera þess augljós merki, þessu gæluverkefni, að fólk vilji virðast vera að gera eitthvað skynsamlegt, virðast vera gera eitthvað gott en að því standi raunverulega á sama hver áhrifin eru. Það er raunverulega eina niðurstaðan sem ég get komist að hérna. Það rennir náttúrlega ekki síst stoðum undir þá tilfinningu hvernig menn nálgast hina svonefndu jafnlaunavottun hér.
Umsögnin sem það vonlausa fyrirbæri fær í þessu er að hún er kölluð markvisst framfaraskref þegar hún er einmitt ekki markviss. Hún hefur ekki borið nokkurn minnsta árangur þrátt fyrir að hafa kostað fyrirtæki í landinu — já, og talið er að hún muni kosta að lokum 20 milljarða þegar upp er staðið. Það eru þegar þó nokkrir milljarðar farnir í súginn. Og þetta er kallað markvisst framfaraskref, þetta gagnslausa og dýra regluverksbákn sem hefur, samkvæmt rannsóknum, ekki haft nokkur minnstu áhrif á launamun kynjanna hér í landi. Engin áhrif. En þetta er kallað markvisst framfaraskref. Maður sér að samkvæmt þessum eftirlitslista Jafnréttisstofu þar sem eru talin upp þessi 654 fyrirtæki sem eru búin að innleiða þessa jafnlaunavottun að þarna eru fyrirtæki á meðal eins og Djúsí Sushi ehf., Metro, Brauð & Co, matsölustaðir sem þurfa að eyða milljónum, meðalkostnaður 7,6 milljónir, í ekki neitt. Og við spyrjum okkur af hverju framleiðni er ekki að aukast hérna á Íslandi.
Ég segi: Fólk sem stærir sig af þessu jafnlaunavottunarkerfi sem markvissu framfaraskrefi, ég segi það með fullri virðingu fyrir hæstv. ráðherra, er ekki treystandi til að halda áfram að íþyngja samfélaginu á þessum hugmyndafræðilega grunni.
Virðulegur forseti. Það veldur vonbrigðum að hinn yfirlýsti markaðssinnaði og frjálslyndi Viðreisnarflokkur hyggist taka við keflinu af stjórnlyndustu vinstri flokkum hér í landi þar sem hugsunin er sú að beita fullum mætti ríkisvaldsins til að tryggja að borgararnir lúti hugmyndafræðilegum áherslum stjórnmálamannanna í daglegu lífi. Þar er skólakerfið mikilvægt verkfæri. Staðan þar er t.d. orðin sú að sums staðar komast menn í gegnum framhaldsskóla án þess að þurfa að taka svo mikið sem einn einasta áfanga í Íslandssögu en í sömu skólum ber þeim skylda til að taka áfanga í kynjafræði. Og hvað er kennt þar? Jú, í grunninn þetta klassíska, að konur séu eilíflega fórnarlömb og að karlar séu vafasamir upp til hópa. Því er beint til stráka í þessum fræðum að siðferðislega rétt sé að þeir víki fyrir konum, ítrekað er fyrir þeim að náttúrulegt ástand þeirra, karlmennska, sé á einhvern hátt alltaf eitruð nema þeir hugsi, tali og hegði sér nákvæmlega eins og kynjafræðingarnir mæla fyrir um. Og nú er stefnt að því í þessari jafnréttisáætlun að tryggja alveg örugglega svona jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum — á öllum skólastigum, ekki bara grunnskólum heldur líka leikskólum. Þannig að innrætingin heldur áfram.
Virðulegur forseti. Ég segi: Í stað fórnarlambsvæðingar, í stað þess að verja hér ómældu skattfé í að byggja upp nýjar og nýjar skýjaborgir jaðarsetningar ólíkra hópa ættum við að höfða til sjálfsábyrgðar einstaklinganna og leyfa þannig samfélaginu í guðanna bænum að hefja að meta fólk óháð kyni og eftir verðleikum. Það væri árangur sem hæstv. jafnréttismálaráðherra gæti verið stoltur af því að þá fyrst væri farið að þjóna hagsmunum borgarinnar en ekki hugmyndafræðilegrar elítu.