fjöleignarhús.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994. Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögunum sem hafa það að markmiði að stuðla að bættu lagaumhverfi um hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum. Frumvarpinu er þannig ætlað að liðka fyrir hunda- og kattahaldi fólks óháð efnahag og búsetu. Gildandi reglur fjöleignarhúsalaganna hafa leitt til þess að íbúar fjöleignarhúsa hafa átt minni möguleika á slíku dýrahaldi en fólk sem býr í sérbýli eða fólk sem hefur sérinngang. Verði frumvarpið að lögum mun það því auka jafnræði gæludýraeigenda hvað varðar húsnæðisvalkost ásamt því að stuðla að auknu húsnæðisöryggi þeirra. Hvað á ég við með auknu húsnæðisöryggi? Jú, það er nú bara svo, bæði á leigumarkaði og víðar, að það er í rauninni sorglegt hvernig fólki er hreinlega úthýst ef það á gæludýravin sem það hefur jafnvel átt árum saman og vill taka með sér þangað sem það flytur. Það liggur náttúrlega alfarið fyrir. Réttur bæði hunda- og kattaeigenda verður þannig betur tryggður án þess þó að gengið sé um of á rétt annarra eigenda til að takmarka slíkt dýrahald ef fyrir því eru málefnalegar ástæður. Ég hef áður lagt fram efnislega sambærilegt þingmannafrumvarp á 151., 152., 153. og 154. löggjafarþingi án þess að það hafi náð fram að ganga. Það er því mikil ánægja að fá að flytja málið að nýju nú sem ráðherra húsnæðismála. Ég tel að um gríðarlega mikilvægt réttlætismál sé að ræða og ég er stolt af því að mæla fyrir því hér í dag.
Frú forseti. Við heyrum sífellt meira um mikilvægi þess að styrkja andlega heilsu fólks, sérstaklega í samfélagi þar sem einmanaleiki, streita og kvíði eru meðal algengustu áskorana. Ráðuneyti mitt ýtti í þessu sambandi í síðustu viku úr vör sérstakri vitundarvakningu um félagslega einangrun undir heitinu Tölum saman, enda einmanaleiki mun algengari í okkar samfélagi en flesta grunar. Á undanförnum árum hafa áhrif gæludýra á líðan fólks fengið aukna athygli. Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á að nærvera gæludýra eykur vellíðan, dregur úr einmanaleika og ýtir undir hreyfingu og útiveru. Margir líta á hundinn sinn eða köttinn sem fjölskyldumeðlim og ómissandi sálufélaga, ekki síst eldra fólk og ungt fólk í viðkvæmri stöðu.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur skilgreint félagslega einangrun sem lýðheilsuvanda til jafns á við reykingar, ofneyslu áfengis, offitu og fleiri stórfelldar ógnir við almannaheilsu. Í þessu sambandi telur stofnunin að eitt af hverjum tíu ungmennum upplifi félagslega einangrun og um fjórðungur eldra fólks. Við sem samfélag höfum skyldu til að búa til umgjörð sem gerir fólki kleift að halda gæludýr með ábyrgum hætti í fjölbýli líkt og einbýli og heimilum með sérinngang. Það er ekki einungis spurning um dýrahald heldur um lýðheilsu, félagslegt öryggi og ekki síður jafnræði óháð efnahag og húsnæðiskosti.
Ég vil bæta þar við í rauninni að það er sárara en tárum taki að hér sé fólki alltaf mismunað eftir efnahag. Það eru ekki allir, frú forseti, sem hafa ráð á því að kaupa sér sérbýli eða koma sér fyrir í dýrari fasteign sem býður upp á það að vera með sérinngang þannig að um það dýrahald gilda önnur lög. Hvers lags samfélag er það sem ítrekað mismunar þegnunum og að jafnvel séu til einstaklingar sem halda því verulega og virkilega fram að það sé réttlætanlegt að halda ítrekað áfram að mismuna fólki eftir búsetu eða efnahag? Við í Flokki fólksins segjum nei takk, hingað og ekki lengra.
Í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi ganga reglur um hunda- og kattahald í fjölbýli út á að dýrahaldið sé leyft nema sérstakar og málefnalegar ástæður mæli gegn því. Húsfélög geta sett dýrahaldi skorður en þurfa þá að rökstyðja þær með tilvísan í hagsmuni íbúa, t.d. vegna ofnæmis eða ónæðis. Það eru einmitt þeir sem eru, frú forseti, að agnúast út í það að við skulum ætla að koma til móts við fólk og gefa því kost á því að eignast sinn vin á sínu eigin heimili, eru að tala um að æ æ, þarna sé mikið ofnæmi eða æ æ, þarna sé mikið ónæði. Ég hvet bara alla hlutaðeigandi til að lesa raunverulega frumvarpið sem ég er að mæla hér fyrir í dag og allar þær girðingar sem við höfum í þessu frumvarpi til að girða fyrir nákvæmlega þann möguleika að einhver geti vaðið í villu og svíma með sín gæludýr án þess að taka tillit til næsta nágranna. Það er dapurt að þurfa að verða vitni að því, neikvæðri umræðu út af akkúrat engu. Á Íslandi er því nefnilega öfugt farið við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndunum. Hér þarf fólk að fá samþykki fyrir því að halda hund eða kött. Þetta er úrelt fyrirkomulag og ólíkt því sem tíðkast í nágrannalöndum okkar, algerlega hafsjór þar á milli. Með frumvarpinu, ef það verður að lögum, færist Ísland nær þeirri sanngirni sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Er eitthvað að því, frú forseti? Hver hefði mögulega eitthvað á móti því?
Virðulegur forseti. Í dag búa margir gæludýraeigendur í fjölbýlishúsum við reglur sem gera þeim erfiðara, ef ekki ómögulegt, að búa með dýrunum sínum. Fólk í einbýlishúsum þarf ekki að leita samþykkis til að halda hund eða kött en fólk í fjölbýli gæti þurft að fá samþykki tveggja þriðju hluta annarra eigenda í húsinu. Þetta skapar kerfisbundið misræmi sem frumvarpið sem hér er til umræðu leitast við að leiðrétta.
Ég mun nú gera grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Lögð er til sú þýðingarmikla breyting að samþykki annarra eigenda verði ekki lengur skilyrði fyrir því að einstaklingur megi halda hund eða kött í fjölbýli, jafnvel þótt íbúðir deili sameiginlegum stigagangi. Aftur á móti geti húsfélög sett reglur um gæludýrahald svo lengi sem þær eru málefnalegar, eðlilegar og byggjast á jafnræði. Slíkar reglur geta eðli máls samkvæmt ekki gengið svo langt að girða fyrir hunda- eða kattahald í fjölbýlishúsi en með þeim geta eigendur sammælst um nánara fyrirkomulag dýrahaldsins, svo sem um umgengni og afnot af einstökum hlutum sameignar. Þetta er algjörlega ný nálgun sem endurspeglar það sem tíðkast í nágrannaríkjum okkar þar sem dýrahald er heimilt nema ríkar ástæður mæli gegn því.
Í ljósi þess að lagt er til að hunda- og kattahald verði ekki háð samþykki annarra eigenda er samhliða lagt til að fellt verði brott ákvæði um að leyfi sveitarfélags fyrir dýrahaldi þurfi að liggja fyrir svo samþykki fáist fyrir því og eigandi að skila inn afriti af leyfinu til stjórnar húsfélagsins. Það er eðlilegt í ljósi þess að sveitarfélög fara með eftirlit með skráningar- og leyfisskyldu dýra og áfram er gert ráð fyrir að húsfélög geti lagt bann við dýrahaldi. — Sko, frú forseti, þarna er ekki eina girðingin en sú sem mestu skiptir, bæði fyrir þá sem eru hreinlega andsnúnir dýrahaldi yfir höfuð og fyrir þá sem hafa áhyggjur af því að dýrin muni njóta vafans í sambýli við fólkið. Það er ekki í boði í þessu frumvarpi. Það er alltaf fólkið fyrst, eins í þessu frumvarpi, þannig að áfram er gert ráð fyrir að húsfélög geti lagt bann við dýrahaldi ef dýrið veldur verulegum ama, ónæði eða truflunum og eigandi bregst ekki við áminningu húsfélagsins með því að ráða bót þar á. Það er ekkert óskýrt, frú forseti, við þetta, ekki neitt.
Í því sambandi er þó lagt til að samþykki tveggja þriðju hluta eigenda þurfi fyrir slíku banni í stað einfalds meiri hluta eins og er í dag. Ekki er hægt að banna hunda- og kattahald í fjölbýlishúsinu í heild sinni á grundvelli þessarar heimildar heldur tekur hún til banns við dýrahaldi í einstökum tilvikum, sem sagt í þeim tilvikum þar sem sá sem heldur dýrið er óalandi og óferjandi með sitt dýr í nábýli við aðra. Gæti heimildin t.d. náð til tilvika þar sem mikið og langvarandi gelt hunds hefur valdið öðrum eigendum verulegum ama, ónæði eða truflun og eigandanum hefur ekki tekist að ráða bót á þrátt fyrir áminningar frá húsfélaginu. Í því sambandi verður húsfélagið þó að veita eigandanum tækifæri og svigrúm til að grípa til viðeigandi ráðstafana, svo sem með liðsinni hundaþjálfara til að breyta hegðun dýrsins í slíkum tilvikum. Jafnframt verður að meta hverju sinni hvort um sé að ræða svo verulegan ama, svo verulegt ónæði eða truflun að umrætt ákvæði eigi við. Dýrahald er að sjálfsögðu eðlilegur hluti af heimilishaldi og verður að gera ráð fyrir að því geti fylgt nokkuð ónæði líkt og annarri umgengni í fjölbýli.
Undir þessa heimild geta einnig fallið tilvik þar sem um er að ræða mikið ofnæmi og eigandanum hefur ekki tekist að ráða bót á þeim ama sem dýrið veldur viðkomandi að því leyti. Hér verður einnig að veita eiganda dýrsins svigrúm til að leita lausna, svo sem með því að koma til móts við þarfir íbúa með ofnæmi með því að lágmarka áhrif dýrahaldsins á viðkomandi. Til dæmis gætu eigandi dýrsins og íbúi með ofnæmi ef til vill komið sér saman um hentugan tíma sem dýrið megi fara um sameign þannig að það hitti ekki fyrir íbúann sem býr við það að vera með ofnæmi. Það eru ýmsar lausnir sem eru í boði en við reynum í rauninni í þessu frumvarpi að tryggja að það sé hafið yfir allan vafa að það er alltaf fólkið sem er í fyrirrúmi. Það er alltaf fólkið fyrst en hér erum við að tala um sanngirni, réttlæti og mannúð.
Það er áfram gert ráð fyrir því að í lögunum verði að finna ákveðnar lágmarksreglur um alla umgengni. Þannig verði áfram kveðið á um að hundar og kettir megi ekki vera í sameign eða á sameiginlegri lóð nema þegar verið er að færa dýrið að og frá sameign. Hundar skuli ávallt vera í taumi og í umsjón manns sem hefur fulla stjórn á þeim. Lausaganga hunda í sameign eða á sameiginlegri lóð telst brot sem valdið geti því að dýrið verði bannað. Ekki er gert ráð fyrir að lausaganga katta teljist með sama hætti alvarlegt brot, enda löng hefð fyrir lausagöngu útikatta hér á landi. Brjóti eigandi dýrs verulega eða ítrekað gegn skyldum sínum samkvæmt lögunum eða sérstökum reglum sem húsfélagið hefur sett sér um fyrirkomulag dýrahalds, þrátt fyrir áminningar húsfélags, getur húsfélag bannað viðkomandi dýrahald og gert honum að fjarlæga dýrið úr húsinu. Lagt er til að til þess þurfi samþykki tveggja þriðju hluta eigenda í stað einfalds meiri hluta.
Áfram er gert ráð fyrir að ef allt um þrýtur — takið eftir, frú forseti — geti gróf eða ítrekuð brot leitt til þess að húsfélagið beiti úrræðum skv. 55. gr. laganna gagnvart eiganda dýrsins en þar er kveðið á um heimild húsfélags til að leggja bann við búsetu og dvöl tiltekins eiganda og gera honum að flytja og selja eignarhluta sinn vegna grófra og ítrekaðra brota á skyldum sínum. Hvað er hægt að hafa þetta skýrara, frú forseti? Ég held að það sé illmögulegt en ýmsir kunna að velta því fyrir sér hvort hér sé gengið of langt í rýmkun reglna um gæludýrahald í fjöleignarhúsum. Hvað þær áhyggjur varðar vil ég benda á fordæmi hinna Norðurlandanna. Hvað varðar áhyggjur fólks sem er með ofnæmi þá bendi ég á að þegar í dag getur sú staða komið upp að tveir þriðju íbúa heimili gæludýrahald í stigagangi þar sem manneskja með mikið dýraofnæmi býr. Þannig er það í dag. Það þarf tvo þriðju til að samþykkja dýrahaldið. Þar eru engir varnaglar slegnir um það sem við erum að gera hér í þessu frumvarpi, að það sé hægt að grípa inn í með þeim hætti sem er tekið fram í þessu frumvarpi. Þetta hefur ekki að mér vitandi leitt til mikilla agnúa. Eins og ég hef farið yfir eru auk þess varnaglar í lögunum til að hægt verði að tryggja að fólk með mikið ofnæmi verði ekki fyrir áreiti vegna þessara breytinga.
Hvað varðar almennar áhyggjur fólks af því að nágrannar þeirra séu ekki færir um að ala sín dýr þá eiga þær áhyggjur við óháð því hvort fjölbýlishús er með íbúðir í sérinngangi eða með stigagangi. Hundagelt berst nefnilega á milli íbúða óháð því hvort það eru 2 metrar á milli eða hvort veggirnir liggja saman. Frekar vil ég beina því til fólks að leita samtals við nágranna sína ef eitthvað bjátar á í þessum efnum.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Ekki er talið að það hafi áhrif á ríkissjóð. Eins og fram hefur komið hefur efnislega sambærilegt frumvarp áður verið lagt fram sem þingmannafrumvarp hér á Alþingi fjórum sinnum. Þá fór frumvarpið í opið umsagnarferli í samráðsgátt stjórnvalda og hlaut þar að megninu til, í langflestum tilvikum, mjög góð viðbrögð. Með þessu frumvarpi er stigið sanngjarnt og málefnalegt skref í átt að nútímalegri löggjöf um gæludýrahald. Við tökum mið af því hvernig fólk býr og lifir og við treystum fólki til að axla ábyrgð á dýrahaldi og samábyrgð í sameign. Við gerum ekki lítið úr áhyggjum nágranna sem eru með ofnæmi eða óttast ónæði en við lítum til þeirra úrræða sem lögin veita nú þegar og við styrkjum þau þar sem við á. Við ætlum okkur að setja réttlátt, heilbrigt og skýrt regluverk um dýrahald sem styður bæði fólk og dýr.
Ég vænti málefnalegrar umræðu um málið og ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.