fjöleignarhús.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu á þessu frumvarpi og vil raunar þakka henni fyrir þetta góða frumvarp. Ég man vel eftir því þegar hún sem hv. þingmaður lagði fram sambærilegt mál og þá einmitt kom ég hér í þessa pontu og studdi það því að mér þykir, eins og hæstv. ráðherra orðar ágætlega, hér um svo mikla mannvirðingu að ræða og tilhugsunin um að sérstaklega eldra fólk þurfi mögulega að kveðja áragamlan vin vegna reglna á eina heimilinu sem stendur því til boða er algerlega nístandi hugsun. Ég vildi bara koma hingað upp og ítreka aftur ánægju mína með þetta frumvarp og ég heyri ekki betur og sé en að það frumvarp sem liggur fyrir hafi dýpkað og batnað frá því sem það var hér sem þingmannafrumvarp frá þáverandi hv. þingmanni.
Ég vil líka fá að nefna að ég er ekki síður hrifin af því að þetta er frelsismál og þrátt fyrir að mér hafi oft fundist að stjórnmálaflokkur hæstv. ráðherra mætti vera dýpri í frelsismálunum þá fagna ég þessu frelsismáli gríðarlega. Ég fagna því sérstaklega að uppleggið sé að það megi allt sem ekki er bannað, en stundum er uppleggið að allt sé bannað sem ekki má. Ég held að sú breyting á þessum reglum sé mjög skynsamleg og mjög falleg og ég vil gjarnan sjá fleiri þætti í samfélaginu með þeim áherslum. En mig langar þó kannski að fá að spyrja hæstv. ráðherra, þar sem við vitum að það eru einhverjir sem hafa áhyggjur af þessu, skiljanlega, varðandi það að húsfélag geti komið og stigið inn í eftir t.d. áminningu og svona: Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að það gæti gengið svona í raunheimum ef hundgá er einfaldlega of mikil eða ef einhverjum líður of illa?