fjöleignarhús.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir ekki bara spurninguna heldur fyrir hennar hlýju orð. Ég er þess mjög minnug þegar hv. þingmaður studdi með brosi á vör þetta frumvarp, sambærilegt frumvarp a.m.k. að mestu leyti sem áður hefur komið fram, þannig að ég veit að það er mikil hlýja og flest og bara ótrúlega mörg okkar hér, hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar, hafa sjálf notið þeirra forréttinda að halda okkar gæludýr og vitum hvað það er mikilsvert.
Í sambandi við það sem hv. þingmaður spyr um, ef viðkomandi er ítrekað uppvís að því og hefur fengið áminningu, hvaða úrræði eru í boði og hvernig ég sæi það — ég treysti náttúrlega húsfélaginu til að takast á við það vegna þess að hér eru í rauninni skýrar heimildir í löggjöfinni um það hvernig á að bregðast við. Ég vona náttúrlega svo sannarlega að viðkomandi sem heldur gæludýrið fái í rauninni þann aðlögunartíma sem kannski umvöndun felur í sér, að það verði ekki gengið fram með einhverju offorsi, og eins og kemur þarna fram, að hann eða hún hafi tækifæri til að gera betrumbót. En heimildirnar í þessu frumvarpi eru allskýrar og þarna er jafnvel gengið það langt að ef allt um þrýtur og ekkert er hægt að gera til að koma í veg fyrir ónæði eða annað slíkt þá hreinlega verði einstaklingurinn þvingaður til að fara af heimili sínu. Mér finnst í rauninni frumvarpið girða fyrir alla vega flest af því sem mér gæti mögulega dottið í hug og reyna að koma til móts við þetta eins og kostur er. En við getum aldrei farið harkalegar fram gagnvart þeim markmiðum sem að er stefnt heldur en nauðsyn ber til.
Ég þakka líka hv. þingmanni fyrir að hún vísaði hérna til okkar ágætu lögmætisreglu og bara meira næst. Ég vona að hv. þingmaður ætli eitthvað aðeins að segja meira.