fjöleignarhús.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið og sömuleiðis hlý orð. Ég vil þá kannski bara örstutt fá að nefna að í grunninn er þetta mjög fallegt frelsismál en frelsinu fylgir alltaf ábyrgð. Það er líka í höndum okkar sem tölum fyrir frelsinu og viljum sjá það sem víðast að bera virðingu fyrir því hvar það getur orðið fólki erfitt og reyna að sníða þá agnúa af sem fyrst, reyna að sjá það fyrir, til þess að sambúð við frelsið gangi sem best. En ég heyri hvað hæstv. ráðherra er að segja þannig að ég leyfi mér kannski bara að segja að ég hvet hv. velferðarnefnd til að vera bara sérlega meðvituð um þann anga málsins því fólk verður óöruggt ef það upplifir að það sé ekki alveg skýr vegferð sem það getur leitað í. Ef það upplifir óöryggi, hræðslu eða vanlíðan þá er það okkar sem viljum passa upp á frelsið að passa líka upp á að vegferðin til að leita leiða í þeirri líðan sé skýr.
Eins og ég segi, ég treysti því að annars vegar velferðarnefnd sem mun fá frumvarpið — og ég get ímyndað mér að aðgerðir í einhvers konar reglugerð ráðherra geti mögulega verið einhvers konar lausn í þessum efnum sem ætti að geta komið til aðstoðar. Ég sit því miður reyndar ekki í hv. velferðarnefnd en skal aldeilis veita alla aðstoð ef þess er óskað við að reyna að finna eitthvert fallegt jafnvægi í þessu tvennu. En ég held þó kannski, þar sem mér finnst frumvarpið vel unnið og frekar skýrt, að ég hafi enga aðra spurningu til hæstv. ráðherra að þessu sinni nema kannski bara að forvitnast hvort hæstv. ráðherra sé meiri kattakona eða hundakona. [Hlátur í þingsal.]