fjöleignarhús.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur aftur fyrir hennar andsvar og mun sannarlega þiggja það ef svo ber undir að leita til hennar um aðstoð ef við þurfum á að halda. Ég ætla ekki að bresta í söng fyrir hv. þingmann en við þekkjum nú textann hérna, „frelsið er yndislegt“, og ég tek undir að hér erum við að taka utan um hóp fólks af mannúð og jafnrétti og frelsi og ég er mjög stolt af því. Ég þakka líka fyrir að hv. þingmaður skuli í rauninni segja að frumvarpið okkar sé vel unnið. Ég er mjög stolt af því og mér finnst það vel unnið og girða fyrir flest, a.m.k. allt það sem ég tel að einhver geti haft áhyggjur af.
En hvort ég persónulega sé meiri katta- eða hundakona — ég er bara alger dýrakona. Þegar ég var yngri þá var ég með kisur og venjulega tók ég að mér kisuna sjálf en nú í seinni tíð þá allt í einu varð ég hundakona og átti náttúrlega engan hund þó að ég sé með hund. Einhverra hluta vegna þá hefur það æxlast þannig að ég er beðin um að passa hund og með því bara á ég þann hund þannig að núna sem sagt er ég allt í einu með tvo hunda, einn eldgamlan lítinn chihuahua-hund sem er að verða tvítugur og algerlega orðinn steinheyrnarlaus, þannig að henni er alveg nákvæmlega sama hversu hátt ég hef. Hinn er hún litla Blíða, sem er alveg ofvirkur lítill border collie, hálfgerð dvergastelpa. En lífið er yndislegt og frelsið líka og það að eiga gæludýr og geta fengið að finna kærleikann og ástina frá þeim, einlægnina, það er ekkert fals þar þannig að ég óska þess að allir fái að njóta þess sem vilja. Takk, hv. þingmaður.