fjöleignarhús.
Frú forseti. Hér erum við að ræða gott mál og það snýst um að verið er að rýmka reglur um gæludýrahald í fjölbýlishúsum. Það er vert að velta fyrir sér hvers vegna reglurnar hafa verið svona strangar. Við höfum verið að rýmka þær smám saman, einkum sem snúa að hundahaldi. Það má rekja takmarkanir á hundahaldi allt til 19. aldar. Þá áttuðu menn sig á því að það væri samhengi á milli sullsins sem hafði herjað á landsmenn og hundahalds. Gott ef það var ekki danskur læknir, Harald Krabbe, sem gerði hér rannsókn og komst að því að sullur væri 47 sinnum algengari í hundum á Íslandi heldur en í Danmörku. Þá var gripið til ákveðinna ráðstafana. Það var sett hér hundatilskipun og hundaskattur. Þetta er allt í lok 19. aldar. Þetta gekk þannig að það sló á þennan fylgifisk hundahaldsins. Menn urðu þess varir að sníkjudýrið varð fullorðið í hundinum sem dreifði síðan eggjum sem lömbin átu og enduðu síðan á ný í hundinum þegar hann át hrátt lambakjöt eða hræ, þá lokaðist lífsferillinn. Fyrir slysni og vegna óhreinlætis lenti eitthvað af þessum eggjum í manninum með þeim afleiðingum að fólk sýktist af stórhættulegum sjúkdómi sem hafði einkum afleiðingar með sulli í lifur. Þessi hringrás var rofin og voru ýmsir baráttumenn í þessu, m.a. Guðmundur Magnússon læknir, og það var farið af stað með hreinsun á hundum í byrjun 20. aldarinnar og hundahald var síðan takmarkað og vakin athygli á handþvotti, eins og við fengum að kynnast í Covid, og því að minnka samgang hunda og fólks sem var fullmikill.
Þessi þungi áróður og þessi vitneskja leiddi ekki aðeins til þess að minnka veikindi heldur leiddi einnig til ákveðinnar andúðar gagnvart hundinum. Það hafði þær afleiðingar að það var bara sett á algert hundabann í Reykjavík 1924 og því var ekki aflétt fyrr en árið 2006. Um þetta varð mikil umræða, það voru hundavinir sem voru að berjast gegn banninu og ætli það hafi ekki verið einn af forvígismönnum Sjálfstæðisflokksins sem hafði sig einna mest í frammi, og stofnandi Borgaraflokksins, Albert Guðmundsson, og varð tíkin hans ekki aðeins fræg á Íslandi heldur um heim allan því þetta bann vakti athygli og var úr takti við það sem gerðist annars staðar, alla vega í hinum vestræna heimi. Þessu banni er ekki aflétt fyrr en árið 2006 í Reykjavík en með miklum takmörkunum. Og nú erum við hér að stíga síðasta skrefið undir forystu hæstv. ráðherra Ingu Sæland og koma þessu í átt við það sem gerist á öðrum stöðum á byggðu bóli.
Hér er verið að velta því upp, eins og þegar farið er yfir öll frumvörp, hvort þetta hafi einhverjar afleiðingar fyrir ríkissjóð. Það má færa góð og gild rök fyrir því að þetta frumvarp hafi jákvæð áhrif fyrir ríkissjóð vegna þess að hundahald hefur jákvæð áhrif á mannlífið. Það hefur verið sýnt fram á það að hundaeigendur hreyfa sig meira og eru þá minna útsettir fyrir blóðrásarsjúkdómum. Þeir eru félagslega ánægðari. Þetta vinnur gegn depurð og hefur bara jákvæð félagsleg áhrif, enda hafa verið stofnuð félög hundaeigenda um land allt, á Akureyri 2010, og víða um land. Það er varla til það bæjarfélag þar sem ekki er komin upp einhver girðing eða einhver aðstaða fyrir hunda. Þannig að það er svona tímanna tákn að loksins erum við komin hér árið 2025 að því að rýmka reglurnar þannig að það verði þægilegra og auðveldara að halda hunda í fjölbýlishúsum.
Auðvitað verður að vera hægt að taka á því, eins og kom fram hér í ræðu hæstv. ráðherra, ef eitthvað ber út af hvað varðar hundahaldið, ef það veldur ónæði og þess háttar fyrir nágranna. En venjulega, og það segi ég eftir langa reynslu úr heilbrigðiseftirliti, þegar það eru vandamál með gæludýrin þá er það tengt einhverjum vandamálum sem fylgja eigendum. Ef það eru vandamál með hunda er oft óregla eða eitthvað annað sem fylgir því.
Hér er um virkilega gott mál að ræða sem gerir Ísland skemmtilegra og er nokkuð ljóst að það mun hafa mjög jákvæð áhrif fyrir lýðheilsu og félagslega þætti hér á landi.