fjöleignarhús.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir þetta frábæra frumvarp. Þetta er mikill gleðidagur fyrir marga og má segja hátíðisdagur. Mig langar að taka upp þráðinn aðeins út frá sálfræðinni og í framhaldi af ræðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar. Undanfarin misseri hafa þau jákvæðu áhrif sem gæludýr hafa á fólk og samfélag orðið sífellt ljósari. Gæludýrahald getur leitt til aukinnar hreyfingar, útiveru og samskipta við annað fólk og sérstaklega fyrir þá sem halda hund. Þannig er gæludýraeign almennt talin draga úr félagslegri einangrun og einmanaleika ásamt því að geta átt þátt í að draga úr streitu, kvíða og þunglyndi. Hér erum við að tala um möguleika á því að fólk minnki jafnvel lyfjagjöf þegar á móti kemur að eiga slíkan vin sem hundur og köttur getur verið og að geta elskað dýrið sitt af öllu hjarta. Félagsskapurinn er ávinningur sem dýrin gefa eigendum sínum og í fjölmörgum tilfellum er hundurinn t.d. eini vinurinn. Nú er ég ekki að segja að kötturinn geti ekki verið það líka, en tengsl manneskju og hunds geta verið mjög sterk, jafnvel jafn sterk og hún ætti við annað fólk. Hundar gefa eigendum sínum oft hlutverk sem er að hreyfa þá, fara út að ganga með þá og dýr uppfylla þörf fólks til að annast annan aðila. Dýrin sýna eigendum sínum hlýju, traust án skilyrða og hlýja og traust og umhyggja fullnægir iðulega þörfum eigenda þeirra fyrir nálægð við aðra.
Ég vil sérstaklega fagna þessu og það er tvennt sem mig langar að nefna. Ég ætlaði að fara ítarlegar í þetta, bara svona til að leggja enn frekari áherslu á þetta góða frumvarp en þar sem hæstv. ráðherra gerði það svo vel er óþarfi að endurtaka það. En það er tvennt sem mig langar þó að nefna hér. Við gerð þessa frumvarps var litið til lagaumhverfis á Norðurlöndum þar sem hunda- og kattahald er almennt leyfilegt án samþykkis nágranna. Það sem ég fagna sérstaklega líka er að felld er brott krafa um að dýr séu skráð hjá sveitarfélagi og vottorði sé skilað til hússtjórnar um það.
Við höfum nokkrum sinnum í gegnum tíðina þurft að horfa upp á grátandi fólk, oft eldra fólk sem hefur neyðst til að flytja inn í fjölbýlishús en hefur orðið og verið nauðbeygt að láta frá sér sinn besta vin. Það er fátt eins átakanlegt og að horfa upp á slíkt. Við í Flokki fólksins, sem er flokkurinn sem ég myndi segja að hafi staðið sig hvað best í þessum málum, bæði hjá borginni og ríkinu hérna á Alþingi, getum ekki horft upp á þetta meir. Með þessu frumvarpi er mjög líklegt að það verði enginn sem á eftir að þurfa að þola þetta nema í einhverjum einstökum og sérstökum aðstæðum sem við vonum að verði eins fáar og hægt er að hugsa sér.
Ég vil að lokum á þessum mikla hunda- og kattadegi lýsa því yfir að ég er stolt móðir tveggja hunda, tveggja maltese-hunda. Sá eldri er hann Kubbur, hann er tæplega átta ára og ég ættleiddi hann fyrir tveimur árum vegna aðstæðna eigenda hans, og svo hann Jökull sem er á þriðja ári. Ég get ekki lýst því svo mjög fyrir þeim sem ekki eiga gæludýr hversu dásamlegt það er að vera foreldri dýra, hunda og katta. Ég veit að það er hægt að elska kött alveg jafn mikið og hundana sína. Ég vil bara segja að lokum: Kærar þakkir, elsku hæstv. ráðherra, Inga Sæland, og til hamingju með daginn.