almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Forseti. Það er nú eiginlega alveg ólýsanlega yndislegt að koma hér upp í dag og mæla fyrir þessu frumvarpi á 100 daga afmæli nýrrar ríkisstjórnar, verkstjórnar sem sýnir það svo sannarlega í verki með samstöðu sinni að við höfum tekið saman höndum, hvar í flokki sem við stöndum, og við erum að lyfta upp fólkinu okkar sem býr við bágust kjörin. Við erum að fara að lyfta þeim upp úr rammgerðri fátæktargildrunni sem þeir hafa mátt búa við um áraraðir. Mér er sannur sómi að því að mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyris almannatrygginga.
Í þessu frumvarpi er kveðið á um mikilvægar breytingar til að bæta stöðu örorku og ellilífeyrisþega og eru þessar tillögur í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem nú hefur verið við stjórnvölinn í 100 daga. Til hamingju með daginn, kæra þjóð og elsku ríkisstjórn. Mikilvægasta breytingin sem mælt er fyrir um í frumvarpinu er sú að lagt er til að lífeyrisgreiðslur almannatrygginga fylgi þróun launavísitölu í stað þess að taka mið af almennri launaþróun. Frumvarpið á rætur sínar að rekja til þingmáls um tengingu almannatrygginga við launavísitölu sem ég ásamt samflokksmönnum mínum í Flokki fólksins lagði fram á 150., 151., 152., 153., 154. og 155. löggjafarþingi. Ég er sem sagt að mæla fyrir þessu máli núna í sjöunda skipti og Flokkur fólksins hefur barist fyrir því.
Í gildandi lögum er kveðið á um að fjárhæðir almannatrygginga skuli breytast árlega í sambandi við launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Reynslan segir okkur þó að því miður var ítrekað valin sú leið að hafa þessa launaleiðréttingu almannatrygginga þann 1. janúar ár hvert oftar en ekki tengda við vísitölu neysluverðs sem þýddi það að einstaklingarnir okkar sem þurftu að framfleyta sér á greiðslum almannatrygginga fengu lægri kjarabót heldur en raunverulega ef þessi vísitala launa hefði verið látin gilda. Það segir okkur það að frá því að efnahagshrunið varð 2008 hefur stöðug kjaragliðnun þessara hópa vaxið ár frá ári. Við, hæstv. ríkisstjórn, erum að klippa á þessa kjaragliðnun og við ætlum að sjá til þess að fólkið okkar sem býr við lökustu kjörin þurfi ekki að bíða eftir réttlætinu mikið lengur.
Launavísitalan endurspeglar tímakaup reglulegra launa og tekur því til fleiri þátta heldur en launaþróun. Við erum að tala um að kaupmátturinn sem við erum að mæla fyrir um í þessu frumvarpi mun verða mun tryggari heldur en áður með því að festa í lög að greiðslur almannatrygginga skuli hækka í samræmi við þróun launavísitölu. Þó er stefnt að því að lífeyrisgreiðslur fylgi betur almennri kjaraþróun á vinnumarkaði og þannig er tryggt að lífeyrisþegar dragast ekki aftur úr í kaupmætti.
Þetta er algjörlega frábært mál og ég er ofurstolt af því, forseti, að ég sé loksins komin með það hérna og hef það gjörsamlega í hjartanu að það muni ná fram að ganga. Ákvörðun um hækkun greiðslna almannatrygginga í fjárlögum hvers árs mun eftir þessa breytingu byggja annars vegar á því að tengja hækkanir greiðslna við mælda þróun vísitölu launa og neysluverðs frá Hagstofu Íslands og hins vegar á spá um efnahagsþróun fjárlagaársins líkt og nú er.
Nýjungin í frumvarpinu felst í því að mælingar á launavísitölu munu liggja til grundvallar hækkununum vegna sögulegrar þróunar í stað launaþróunar eins og verið hefur og eins og ég áður hef sagt. Það verður áfram stuðst við hækkanir vegna vísitölu neysluverðs ef sú vísitala hækkar meira en launavísitalan þannig að hér er enn þá þessi öryggisgaffall á ferðinni að sú vísitalan sem hækkar meira, hvort heldur sem það er vísitala launa eða neyslu — við munum tryggja að það verði stuðst við þá vísitölu þegar kemur að útreikningum almannatrygginga og leiðréttingu þeirra 1. janúar ár hvert. Þessi breyting mun skila mikilvægri kjarabót til allra lífeyrisþega almannatrygginga en um síðustu mánaðamót voru það um 65.000 einstaklingar. Það verða 65.000 einstaklingar sem munu njóta þessa góða frumvarps þegar það hefur náð fram að ganga. Vonir mínar standa til þess að með þessari aðgerð ásamt gildistöku nýs örorkulífeyriskerfis muni stærstur hluti þjóðarinnar upplifa það að hafa meira en 450.000 kr. á mánuði í ráðstöfunartekjur og það áður en langt um líður.
Virðulegi forseti. Önnur mikilvæg breyting sem hér er lögð til er að aldursviðbót þeirra örorkulífeyrisþega sem hafa uppfyllt skilyrði fyrir henni falli ekki niður á því tímamarki þegar örorkulífeyrisþegi nær ellilífeyrisaldri heldur fylgi ellilífeyrinum út ævina. Hvað erum við að segja hér? Þetta þýðir að þau sem eiga engin eða mjög takmörkuðu atvinnutengd réttindi til ellilífeyris vegna þess að þau voru ung metin til örorku munu áfram njóta stuðnings með viðbótargreiðslu nái þetta frumvarp fram að ganga. Um er að ræða ívilnandi ákvæði sem bætir fjárhagslega stöðu þeirra sem uppfylla skilyrði fyrir því að fá greidda aldursviðbót í því nýja greiðslukerfi örorkulífeyris sem tekur gildi þann 1. september næstkomandi. Þetta er stórkostleg kjarabót. Staðreyndin er sú að framkvæmdin hefur verið með þeim hætti að á afmælisdaginn 67 ára, akkúrat á þeirri mínútu, þá ekki bara hættum við að vera öryrkjar heldur í rauninni verðum við ellilífeyrisþegar og ég var oft að gantast með það hér að það væri kannski tilhlökkunarefni fyrir mig þegar ég yrði 67 ára að geta fleygt gleraugunum og væri komin með fulla sjón og færi bara að keyra bíl eða að hendur og fætur færu að vaxa á fólk sem hefði missti útlimi og annað slíkt vegna þess að slík var framkvæmdin. Það var engu líkara en að öryrkinn, um leið og hann varð 67 ára, þá var bara ekki að marka það lengur. Halló, þú ert ekki lengur öryrki, þú ert ellilífeyrisþegi og með því ætlum við bara að taka aldurstengdu örorkuuppbótina þína, sem gat skipt þúsundum og aftur þúsundum á mánuði, það var verið að skerða framfærslu þessara einstaklinga um það. Þetta, forseti, er algerlega síðasta sort. Þess vegna er mér mikil gleði að vera með það inni í þessu frumvarpi að við erum að stöðva þetta óréttlæti.
Þessi tillaga á rætur sínar að rekja til þingmáls sem samflokksmaður minn, hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, lagði fram ásamt mér og öðrum samflokksmönnum okkar á 150., 151., 152., 153., 154. og 155. löggjafarþingi. Það verður aldrei sagt um Flokk fólksins að hann hafi ekki barist hér ötullega frá því að hann var kjörinn á Alþingi Íslendinga fyrir því að bæta kjör þeirra sem höllustum fæti standa. Þess vegna er ánægjulegt að við skulum eiga í dag samstiga ríkisstjórn með hjarta úr gulli sem slær í takt við þarfir samfélagsins í heild sinni þar sem við tökum utan um alla og við viljum hjálpa öllum, ekki bara sumum. Hér ráða engin sérhagsmunaöfl heldur almannahagur. Við erum með almannahag að leiðarljósi, við í þessari ríkisstjórn, þessari verkstjórn sem á 100 daga afmæli í dag. Það er ánægjulegt að þau góðu mál sem við í Flokki fólksins höfum í gegnum tíðina unnið að séu nú komin hingað sem stjórnarfrumvörp og fái brátt framgöngu í þinginu. Vonir mínar standa auðvitað til þess að þau verði loks að lögum.
Virðulegi forseti. Til viðbótar við þær mikilvægu breytingar sem ég hef farið yfir og ætlað er að styrkja fjárhagslega stöðu þeirra sem njóta greiðslna úr almannatryggingum eru lagðar til tvær aðrar breytingar. Lagt er til að Tryggingastofnun haldið skrá á landsvísu með upplýsingum frá þjónustuaðilum um framvindu meðferðar og endurhæfingar einstaklinga. Skránni er ætlað að tryggja nauðsynlega yfirsýn yfir þjónustu og stuðla að samfellu í þjónustu og greiðslum. Með öðrum orðum, breytingunni er ætlað að tryggja að haldið sé utan um þessar upplýsingar til að þær geti nýst til að stuðla að því að einstaklingar fái rétta endurhæfingarþjónustu á réttum stað og á réttum tíma. Persónuauðkenni í skránni verða dulkóðuð til að tryggja friðhelgi einkalífs.
Enn fremur felur frumvarpið í sér að ákvæði um stjórn Tryggingastofnunar verði felld úr lögum. Tryggingastofnun hefur haft sérstaka stjórn frá árinu 2004. Skipun seinustu stjórnar rann út í nóvember síðastliðnum eða við lok síðasta kjörtímabils og sú staða hefur ekki haft nein áhrif á starfsemi stofnunarinnar, enda er yfirstjórnunarhlutverk ráðherra skýrt samkvæmt lögum og því ekki ástæða til að hafa sérstaka stjórn með óljóst hlutverk yfir stofnuninni. Þess vegna er lagt til að fella ákvæði um stjórnina á brott úr lögunum.
Virðulegi forseti. Frumvarpið er í samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og alþjóðlegar skuldbindingar á sviði félagslegra réttinda. Ákvæðið um tengingu greiðslna almannatrygginga við launavísitölu og að aldursviðbót fylgi öryrkjum þegar þeir hefja töku ellilífeyris er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem boðar aðgerðir til að uppræta fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Með því að lögfesta þessar breytingar eru stigin mikilvæg skref í átt að réttlátara samfélagi þar sem meiri jöfnuður ríkir. Þeirri vegferð er þó ekki nándar nærri lokið og við munum halda áfram að vinna að bættu samfélagi fyrir þá sem þurfa að njóta stuðnings hins opinbera sér til lífsviðurværis.
Virðulegur forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar.