almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Frú forseti. Hér er um stórt mál að ræða og tímamótamál því að hér er verið að draga þá línu að örorku- og ellilífeyrisþegar dragist ekki aftur úr kjörum annarra landsmanna. Ég er stoltur af því að vera háseti á þessu skipi sem valkyrjurnar leiða og setja þetta frumvarp nú fram, 100 dögum eftir að ríkisstjórnin tók til starfa. Ég er sannfærður um það að þetta mun leiða af sér betri kjör fyrir örorku- og ellilífeyrisþega strax á þessu ári og þegar fram vindur og ég tala nú ekki um að ef við höfum ríkisstjórn með þetta hjartalag áfram þá munum við uppskera með þessu frumvarpi mjög ríkulega hjá þeim sem njóta þessara greiðslna.
Það sem stendur til í þessu frumvarpi varðar annars vegar þá sem njóta aldurstengdra örorkubóta, þ.e. þá sem verða ungir fyrir örorku, að bæturnar falli ekki niður við það að verða eldri borgari heldur að menn fái að njóta þeirra áfram. Hins vegar, sem varðar kjör þessara hópa, á að miða við launavísitölu ef það er hagstæðara eða neysluverðsvísitölu ef það gefur betur. Það er mikilvægt að stöðva þá kjaragliðnun sem verið hefur í samfélaginu á milli þessara hópa og annarra og þetta mál er jákvætt skref í þá átt. Ég er sannfærður um það að þetta mun verða tæki sem mun smám saman bæta kjör þessara hópa sem hafa orðið eftir á liðnum árum.