156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:25]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir framsöguna og koma fram með þetta mál. Mig langaði í upphafi að velta því upp varðandi frumvarpið hvort ráðherra hafi ekki áhyggjur af því að það muni hafa áhrif á hinn almenna vinnandi mann, það sé horft framan í það að laun hækki í rauninni minna heldur en bætur og að staðan í samfélaginu verði þá þannig að ef launaskrið verður, t.d. í efri hluta launastigans, þá gætum við horft upp á það að þetta hafi þau neikvæðu áhrif að bætur væru þá komnar umfram laun. Ég held að það sé mikilvægt að bótakerfið sé þannig uppsett að það sé enginn skilinn eftir og það sé vel haldið á málum þeirra sem þurfa á hjálp samfélagsins að halda. Ég held að í mörgu geri þetta frumvarp einmitt það. En það er þessi galli sem ég vil nefna að sé mögulega fyrir hendi, að hér verði uppi ákveðið misgengi, t.d. ef við horfum á atvinnuleysisbætur og lægstu laun, það verði sú staða uppi að bætur verði í rauninni hærri heldur en lægstu laun.