156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:28]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp. Ég skil alveg megininntakið í frumvarpinu, það er að koma til móts við okkar minnstu bræður og systur. Það er það sem við höfum alltaf haft að markmiði, við Íslendingar, að vera með þetta sameiginlega öryggisnet sem heldur utan um okkar minnstu bræður og systur. En við þurfum líka að halda utan um og passa upp á þá sem eru hinar vinnandi stéttir þessa lands. Við verðum líka að passa upp á að það gæti ekki misræmis eins og hv. þm. Ólafur Adolfsson benti á, að við lendum ekki í því misræmi sem getur átt sér stað einmitt, að þeir sem eru á bótum muni hækka og fara yfir þá sem eru á lægstu töxtunum. Það er nefnilega þannig að vinnumarkaðslíkanið á Íslandi er ekki alveg jafn þróað og vel í stakk búið og hið skandinavíska. Í Skandinavíu er meginreglan sú að það eru útflutningsgreinarnar, það er almenni markaðurinn sem ákveður hvernig kjarasamningarnir verða og hinn opinberi markaður fylgir á eftir. Þannig hefur það alltaf verið enda segir það sig sjálft að það hlýtur að vera almenni markaðurinn sem leggur línurnar fyrir það hvað hægt er að borga af því að það er almenni markaðurinn sem borgar laun opinberra starfsmanna og annarra sem fá greitt úr sameiginlegum sjóðum. En það hefur ekki alveg verið uppi á teningnum á Íslandi. Hérna höfum við margoft látið það gerast að opinberar stéttir leiða launaþróun. Við erum nú bara með eitt dæmi akkúrat núna sem gerðist fyrir ekki svo löngu síðan þegar kennarar fengu tæplega 25% launahækkun, vel umfram það sem almenni markaðurinn hafði samið um. Hvað gerist næst, þegar næstu opinberu stéttir koma? Af þessu mun launavísitalan ráðast og þetta getur haft áhrif.

Með leyfi forseta, vil ég fá að vitna í greinargerðina þar sem er farið yfir umsögn Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs:

„Samtök atvinnulífsins (SA) gjalda varhuga við því að tengja greiðslur almannatrygginga við launavísitölu í sinni umsögn um frumvarpið og Viðskiptaráð leggst gegn þeirri breytingu. Í umsögnum SA og Viðskiptaráðs koma fram áhyggjur af auknum verðbólguþrýstingi, verði þessi breyting að lögum. Opinber útgjöld muni aukast, hvatar til þátttöku á vinnumarkaði muni veikjast og byrðar þeirra sem eru á vinnumarkaði þyngjast. Í báðum umsögnum er minnst á tvöfalda tryggingu bóta með tengingu við launavísitölu og tryggingu fyrir því að hækkanir verði aldrei minni en hækkun á vísitölu neysluverðs sem geti aukið misræmi milli hækkana á bótum og launahækkana.“

Við erum öll sammála um hvert megininntakið er. Það er að standa vörð og styðja við þá sem eiga um sárt að binda en við verðum líka að gæta þess að það sé í einhverjum takti og í einhverju samræmi við það sem aðrir hópar í samfélaginu eru að fá. Ég get skilið hvert hæstv. ráðherra er að fara og ég held að við öll sem höfum fylgst með henni og hennar pólitík og pólitískum störfum og ræðum skiljum það. En hér erum við að tala um hækkun sem er áætluð milli 3 og 4 milljarðar á ári. Þessi hækkun getur verið verðbólguaukandi. Það er ekki gott fyrir heimilin í landinu, hvaðan sem þau sækja tekjur sínar. Það þýðir hækkandi vextir og það er ekki gott fyrir heimilin í landinu.

Þetta er mál sem þarfnast umræðu og við verðum að skoða vel hvaða efnahagslegu áhrif það hefur og ég held að það sé líka þeim mun mikilvægara að skoða hvernig vinnumarkaðsmódelið okkar er sett upp þannig að það sé hinn almenni markaður sem leiði hér launaþróun en ekki hinn opinberi markaður.