almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Mig langar að koma hingað upp og ræða aðeins við og spyrja hv. þm. Jens Garðar Helgason út í ummæli hv. þingmanns. Það var aðeins farið yfir stöðuna á vinnumarkaði sem auðvitað tengist þessu kannski ekki með beinum hætti nema að því leyti að hér er verið að ræða frumvarp sem tryggir þó öryrkjum og ellilífeyrisþegum sömu launaþróun og vinnumarkaðurinn nýtur. Mikilvægt er auðvitað að tryggja þessum veika hópi, sem er kannski veikburða í samfélaginu, sambærilega launaþróun og þekkist hjá öðrum. En það mátti aðeins lesa á milli línanna hjá hv. þingmanni að það væri ekki alveg svo að hann vildi tryggja þessum hópum sanngjarna launaþróun, sanngjarna þróun á þeim bótum sem greiddar eru til þeirra. Því langar mig að spyrja: Eru það öryrkjar og ellilífeyrisþegar sem eiga að bera ábyrgð á verðbólgunni sem við blasir hér á landi? Auk þess spyr ég hv. þingmann hvort hann telji ástæðulaust að stöðva kjaragliðnun undanfarinna ára sem við höfum þó séð í samfélaginu gagnvart þessum hópum vegna þess að þeir hafa ekki fylgt því sem almennt hefur gerst.