156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:35]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni fyrir þessa spurningu. Það er náttúrlega munur á launaþróun og launavísitölu. Við vitum það nú báðir og höfum setið saman og verið að ræða um kaup og kjör. Þetta snýst því ekki um launavísitölu eða að vera á móti því að þessir hópar njóti, hvað á maður að segja, vaxandi kjara. En við vitum það líka að vinnumarkaðsmódelið á Íslandi er ófullkomið. Það getur tekið stökk. Það getur tekið stökk af því að ákveðnir hópar hafa verið að fá ákveðnar hækkanir umfram aðra hópa. Það gerist ekki síst á hinum opinbera markaði og við verðum að passa upp á það. Því er smámunur á almennri launaþróun eða að tengja þetta beint við launavísitölu. Það er bara það sem ég er að tala um. En ég geri ráð fyrir því að þetta mál verði rætt í nefndinni og þar muni verða kallaðir til sérfræðingar sem komi og ræði þetta betur.