almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Frú forseti. Mig langar að benda á það að launaþróun á markaði er endurspegluð í launavísitölunni. Launavísitalan sem Hagstofa Íslands tekur saman mælir nákvæmlega hver launaþróunin á markaði er. Þess vegna skil ég ekki alveg þessar athugasemdir hv. þingmanns til þessa. Ef við fylgjum ekki launavísitölunni þá erum við að búa til kjaragliðnun í þessum hóp og ef launaþróun á markaði er mikil þá eykst þessi gliðnun. Þá eykst munur á milli hópa. Hér er verið að segja að ef laun hækki meira en verðlag þá muni þessi hópur njóta sömu hækkana og almennt gerist á markaði. Það er auðvitað það mikilvæga í þessu.