156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:37]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég endurtek það sem ég sagði áðan. Hv. þingmaður segir: Einstakir hópar. Einstakir hópar geta fengið miklar launahækkanir, sem getur haft áhrif á launavísitölu. Hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnarson hefur nú staðið í stafni í verkalýðsforystunni og ég held að hann skilji nú manna best ef ákveðnir hópar fara langt fram yfir. Þá hefur hv. þingmaður í fyrra starfi látið í sér heyra og það hafa aðrir verkalýðsleiðtogar gert. Ég held að það sé akkúrat það sem um er verið að tala, að það verður að gæta jafnræðis í þessum málum.