156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:38]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst gæta ákveðins misskilnings í máli hv. þm. Jens Garðars Helgasonar. Það er alveg ljóst að það eina sem getur ýtt undir það, hvað eigum við að segja, að örorku- og ellilífeyrisþegar leiði þessa þróun er það ef neysluverðsvísitalan hækkar mun meira en launavísitalan. Þetta frumvarp tryggir að laun ellilífeyrisþega og örorkulífeyrisþega haldi í við launaþróun. Ég spyr: Er þetta eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn er að berjast gegn? Ég hef ekki trú á því, alla vega held ég að þetta frumvarp muni miklu frekar tryggja að kjör þessara hópa dragist aldrei aftur úr og þetta muni þá smám saman færast til betri vegar en verið hefur á síðastliðnum árum.