almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Ég held að hér gæti einhvers misskilnings á því að Sjálfstæðisflokkurinn sé að setja sig upp á móti því að við komum til móts við okkar minnstu bræður og systur í samfélaginu. Það er bara alls ekki þannig. Undir stjórn Sjálfstæðisflokksins voru settir aukalega í þennan málaflokk 80 milljarðar. Frítekjumarkið var hækkað. Það hefur verið komið til móts við þessa hópa en auðvitað er alltaf hægt að gera betur. Ég held að það sé náttúrlega þannig að það verður að horfa til þeirra athugasemda sem fram hafa komið við gerð þessa frumvarps en að sama skapi held ég að við hljótum að geta fundið einhverja sameiginlega lausn á því hvernig það er best, af því að við verðum að horfa til allra hópa. Ég held að hv. þm. Sigurjón Þórðarson átti sig líka á því að hann vill heldur ekki lenda í því að lægst launuðu hóparnir séu komnir undir. Ég held að það sem við erum að tala um sé þetta: Er þetta rétta leiðin? Er þetta rétta aðferðin við að nálgast þetta mál eða getum við gert það einhvern veginn öðruvísi?