156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:41]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Hér er enginn misskilningur. Þetta er auðvitað auðskilið mál. Verið er að tryggja að kjaragliðnun verði ekki áfram heldur að við færum hlutina til betri vegar. Það var í sjálfu sér mjög gott að heyra að hv. þm. Jens Garðar Helgason væri á því að ná fram markmiðum frumvarpsins. Þess vegna væri gott að fá fram í síðara svari hver sú leið er sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram. Þessi leið hefur skýr markmið og hún er góð. Hún tryggir það einfaldlega með skýrum hætti að kjör ellilífeyrisþega og örorkubótaþega verði sambærileg okkar hinna, þ.e. að þróun kjara þessara hópa verði með sama hætti og okkar hinna. Þetta er gott frumvarp og ég vona svo sannarlega að hv. þingmaður sjái ljósið, (Forseti hringir.) skoði þetta frumvarp með jákvæðum hætti og komi þá með einhverja aðra leið sem hann telur betri.