156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:42]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir þessa hugleiðingu hans. Ég held að í grunninn séum við ekkert ósammála. Það hefur verið leiðarstef Sjálfstæðisflokksins alveg frá upphafi, alveg frá 1929, að búa til öryggisnet og standa vörð um okkar minnstu bræður og systur hér á landi og það hefur alltaf verið þannig. Við höfum vitað það að til þess að leggja meira í almannatryggingakerfið, velferðarkerfið og öll þau kerfi sem við rekum þá þurfum við að vera með verðmætasköpun, skapa meiri verðmæti og fleiri störf. Það er grunnurinn að því að við getum í rauninni farið að hugsa um allt annað. Hér erum við að tala um hvaða aðferð og hvaða leið er best. Ég geri ráð fyrir því að fyrir nefndina komi sérfræðingar og umsagnaraðilar og ræði þetta mál. Ég held að það sé bara hið besta mál af því að öll viljum við komast að góðri niðurstöðu fyrir þessa hópa.