almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegi forseti. Öðruvísi mér áður brá en kemur það svo sem ekki á óvart hvernig í rauninni hv. þm. Jens Garðar Helgason stígur fram og ber fyrir sig umsagnir Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs. Við horfumst í augu við það að við erum að tala um einstaklinga sem eiga ekkert val, einstaklinga sem eru algerlega bundnir á þann bás að þurfa að reiða sig á aðstoð, það öryggisnet sem hv. þingmaður hefur nefnt hér, öryggisnet sem er gatasigti og hefur hneppt tugi þúsunda Íslendinga í rammgerða fátæktargildru og aukið svoleiðis á kaupmáttargliðnun og rýrnun frá síðasta efnahagshruni að út af standa hátt í 100.000 kr. Að standa vörð um framfærslu þessara hópa; sér er nú hver varslan. Ég segi ekki annað en það. Hér hefur verið rembst eins og rjúpan við staurinn við að reyna að rífa fólkið okkar úr fátækt og mér misbýður sá málflutningur sem ætlar ekki að réttlæta það í eina einustu sekúndu að loksins skulum við raunverulega vera að lyfta fólkinu okkar upp úr sárri neyð sem hefur verið í umboði Sjálfstæðisflokksins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)