156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:45]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það mætti halda að hæstv. ráðherra hafi ekki verið að hlusta á mig þegar ég var að tala hérna áðan. Ég er bara algerlega sammála því að við eigum að koma á móts við þessa hópa og við eigum að hjálpa þeim og styðja þá. En hvaða leið er best? Það getum við tekið umræðuna um hér. Við megum ekki gleyma því að Sjálfstæðisflokkurinn var búinn að setja tugi milljarða í þennan málaflokk. Við erum búin að hækka frítekjumarkið. Það eru heilmargar aðgerðir sem búið er að gera á undanförnum árum. Við skulum ekkert horfa fram hjá því þegar Samtök atvinnulífsins koma og veita umsögn og hafa áhyggjur af því að þetta geti haft áhrif á verðbólguna, sem er versti óvinur allra, versti óvinur heimilanna í landinu. Alveg sama hvaða innkomu menn hafa þá er verðbólgan versti óvinur okkar allra. Ef við missum tök á verðbólgunni þá missum við tök á vöxtunum og þá munu öll heimili, alveg sama á hvaða innkomu þau byggja, líða fyrir það.

Ég ætla bara að segja eitt, hæstv. ráðherra. Við erum alveg sammála og ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við hæstv. ráðherra um það hér hvernig útfærslan á að vera. Ég treysti því að í meðförum þingsins verði kallaðir til sérfræðingar og ráðgjafar, hagsmunaaðilar, og við komumst að einhverri góðri niðurstöðu um þetta mál. Ég bara treysti því.