almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Frú forseti. Hv. þm. Jens Garðar Helgason getur treyst því að þeir sem komu að frumvarpsgerð þessari eru allt saman sérfræðingar. En það er nú líka svolítið sorglegt ef á einhverjum tímapunkti nokkrum dettur það í hug að 3–4 milljarðar sem setja á í þetta á ári skuli verða þess valdandi að öryrkjar og ellilífeyrisþegar, sem standa höllustum fæti í samfélaginu, verði þeir sem rúlla af stað verðbólgunni. Hvað með 200 milljarða vaxtaokur bankanna á hverju ári? Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því? Hvað ætla Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð að gera í því? Hvað með þá óráðsíu sem við erum að takast á við, sem er að sökkva samfélaginu í skuldafen okurvaxta? Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því? Staðreyndin er sú að hversu marga milljarða sem hv. þingmaður talar um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt í það að bæta kjör þeirra sem höllustum fæti standa þá standa þeir verr (Forseti hringir.) frá ári til árs.